aðgerðir í efnahagsmálum.
Frú forseti. Það er rétt hjá hæstv. forsætisráðherra að það er eitt og annað sem spilar ekki saman hér. Hæstv. forsætisráðherra sagði rétt áðan í svari við fyrirspurn hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur að það væri ekki ríkið sem semdi um kaup og kjör. Ríkið hefur reyndar verið leiðandi á vinnumarkaði í samningum um kaup og kjör en hæstv. forsætisráðherra segist nú telja að aðrir aðilar vinnumarkaðarins, einkareksturinn, muni vilja vinna með ríkisstjórninni. Ríkisstjórnin hefur gert fátt annað en að kenna öðrum um, m.a. þegar mjög fyrirsjáanlegar hækkanir síðustu fjárlaga og bandorms leiddu til verðlagshækkana. En hvað ætlar ríkisstjórnin að gera? Er hún kannski bara búin að missa áhugann á Íslandi og íslensku efnahagslífi? Er hugurinn bara kominn til Brussel? Hæstv. forsætisráðherra svaraði því ekki hér áðan. Ég bara spyr hreint út: Hvað eruð þið að bauka?