þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB.
Virðulegi forseti. Ég segi bara: Guði sé lof að þetta sjónarmið, þetta hugleysi, að mínu mati, var ekki til staðar í þingsal 1949 af hálfu meiri hluta þáverandi ríkisstjórnar. Að vera óhrædd við það að taka stórar hugrakkar ákvarðanir á örlagatímum, eins og voru eftir seinni heimsstyrjöldina, og þora að segja að Ísland, herlaus þjóð, umdeilt mál, að Ísland ætli sér að hafa sæti við borðið af því að rödd Íslands skipti máli. Ég segi einfaldlega: Guði sé lof að þessi sjónarmið voru ekki þá við lýði af því að þá hefðum við ekki tekið þátt í stofnaðild að Atlantshafsbandalaginu. Ég segi það enn og aftur. Það kemur reyndar ekkert á óvart að hv. þingmaður haldi að ekkert hafi breyst hjá Evrópusambandinu. Það er mjög mikið búið að breytast bara á umliðnum árum. Frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst hefur Evrópa gjörbreyst og tekið meiri ábyrgð á sínum vörnum, meiri ábyrgð á sínu öryggi, bæði efnahagslegu sem og hinum hefðbundnu varnarþáttum. (Forseti hringir.) Já, ég treysti íslensku þjóðinni. Þetta er mjög einföld spurning. Við eigum rétt á því, alveg eins og til að mynda Norðmenn hafa gerst tvisvar, (Forseti hringir.) þeir tóku afstöðu til samnings. Við hvað eru menn hræddir?