innflytjendur og atvinnuleysi.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir að vekja máls á atvinnuleysi. Það kom fram í máli hæstv. forsætisráðherra hér áðan að tölur um atvinnuleysi lýsa tvískiptum vinnumarkaði. Það er þess vegna ekki rétt sem hv. þm. Snorri Másson heldur fram að atvinnuleysi meðal Íslendinga hafi aukist. Þvert á móti hefur það raunar staðið í stað árum saman. Það atvinnuleysi sem mælist er fyrst og fremst meðal þeirra sem eru með erlent ríkisfang. Þetta eru sérstakar aðstæður og snúnar vegna þess að það er þrátt fyrir allt þannig að því háa raunvaxtastigi sem Seðlabankinn hefur viðhaldið núna um alllangt skeið er ætlað að auka slaka á vinnumarkaði, draga úr þenslu á vinnumarkaði en það skilar sér einungis að litlu leyti. Það skilar sér einungis til þess hluta, alla vega enn sem komið er, sem snýr að erlendum ríkisborgurum og hefur þess vegna ekki tilætluð áhrif hagstjórnarlega. Þetta er áskorun og ég viðurkenni fúslega að það verður snúið að vinna úr þessari stöðu en eins og hæstv. forsætisráðherra kom inn á áðan er okkar ætlun eindregin í að ná árangri hvað þetta varðar.
Ég vara við því að menn setji þetta mál fram þannig að þetta sé vandamál þess fólks sem missir vinnuna, að þetta sé einhvern veginn vandamál þessa innflutta vinnuafls, vegna þess að þrátt fyrir allt er það þannig að þetta innflutta vinnuafl sinnir í fyrsta lagi alveg gríðarlega mikilvægu hlutverki í alls konar störfum í íslensku samfélagi sem ekki hefur tekist og myndi ekki takast að manna með öðrum hætti. Í öðru lagi hefur það verið grunnurinn að þeim hagvexti sem varð hér á undanförnum árum þrátt fyrir að við getum auðvitað, þegar við horfum í baksýnisspegilinn, velt því fyrir okkur hvort sú verðmætasköpun sem fylgdi því hafi fyllilega staðið undir kröfunum sem það gerir á kerfin okkar.