157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

innflytjendur og atvinnuleysi.

[16:19]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir aðra spurningu. Ég verð nú að viðurkenna að ég hef ekki lesið umræddan pistil og ætla þess vegna ekki að tjá mig sérstaklega um efni hans en ég get í sjálfu sér giskað á hver spurning hv. þingmanns er. Ég held að það sé einörð afstaða þessarar ríkisstjórnar, og raunar þingheims alls, að við munum áfram byggja upp íslenskt samfélag á u.þ.b. sömu forsendum og við höfum gert hingað til. Meðan við fögnum því að hingað vill flytja fólk, og sérstaklega fólk sem sinnir störfum sem ekki fást mönnuð með öðrum hætti, þá er áhyggjuefni hve verðmætasköpun margra þessara starfa hefur verið takmörkuð. Hluta af þeirri áherslu sem kemur fram hjá ríkisstjórninni er að sjá í drögum að atvinnustefnu. Það sem við þurfum eru fleiri störf með háa framleiðni. Hvernig þau verða mönnuð er önnur spurning.(Forseti hringir.) En aðalatriðið er þetta: Ef við ætlum að byggja upp íslenskt samfélag þurfum við störf sem skila mikilli verðmætasköpun.