fundur með ráðherrum vegna styrkingar utanríkisþjónustunnar.
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur um mikilvægi þess að við förum að huga að stjórnskipunarmálum hér á Alþingi. Dæmin um ekki bara óhefðbundna heldur á köflum jafnvel ólögmæta meðferð mála í nefndum þingsins kalla á viðbrögð. Ég hef, og fleiri hafa gert það, sérstaklega kallað eftir viðbrögðum hæstv. forseta vegna þess sem er að gerast varðandi áform ríkisstjórnarinnar um að selja vegabréfsáritanir til útlanda og sem víðast. Þetta er mál sem mun hafa gríðarleg áhrif nái það fram að ganga eins og lagt er upp með; áhrif á samfélag sem er þegar í mjög töluverðri vörn hvað landamærin varðar. Það að utanríkisráðuneytið sé byrjað að auglýsa eftir aukamannafla til að takast á við sumarið, þegar ráðuneytið gerir greinilega ráð fyrir að þessi nýju lög verði komin í gildi, (Forseti hringir.) sýnir vanvirðingu gagnvart Alþingi sem hæstv. forseti á að mínu mati að grípa inn í.