157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

fundur með ráðherrum vegna styrkingar utanríkisþjónustunnar.

[16:25]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég má til með að nýta tækifærið þegar ég hef loksins hér augu og eyru hv. formanns utanríkismálanefndar og framsögumanns málsins sem um ræðir, hv. þingmanns, og vísa til orða hv. þm. Pawels Bartoszeks þegar við ræddum hér síðast varnar- og öryggismál, þar sem hann kom sérstaklega hingað í pontu til að predika yfir okkur þingmönnum um hvað það væri ótrúlega mikilvægt að það næðist breið samstaða þegar kæmi að varnar- og öryggismálum af því að þau hefðu algjöra sérstöðu. Þetta reyndust vera orðin tóm og auðvitað sögð bara af þessu tyllitilefni. Ég ítreka það að mér þykir virkilega miður hvernig er komið fyrir starfsandanum, venjum og hefðum í nefndastarfi Alþingis, þar með talið í hv. utanríkismálanefnd.