fundur með ráðherrum vegna styrkingar utanríkisþjónustunnar.
Herra forseti. Hér kemur hæstv. utanríkisráðherra upp og segir að hér sé misskilningur á ferð. Ég vil taka fram af þessu tilefni, að hæstv. utanríkisráðherra talar um misskilning, að mér barst til eyrna að í febrúar síðastliðnum, í byrjun febrúar, hafi t.d. tekið til starfa í tilteknu sendiráði í Asíu ný áritunardeild, ráðnir starfsmenn þar. Þá langar mig að spyrja fyrst ráðherra er hér staddur í salnum: Á hvaða grunni var það gert? Á hvaða grunni voru þeir starfsmenn ráðnir? Á hvaða grunni var ný áritunardeild tekin í notkun í sendiráðinu? Þetta er sendiráðið í Tókýó sem ég er að tala um. Hvers vegna talar hæstv. ráðherra um misskilning þegar staðreyndirnar tala sínu máli? Hvers vegna er talað um misskilning? Þetta er enginn misskilningur. Það er verið að ráða starfsfólk hér og þar til að sinna áritunarmálum.