fundur með ráðherrum vegna styrkingar utanríkisþjónustunnar.
Herra forseti. Hæstv. utanríkisráðherra kemur hér upp og vill leiðrétta þingið. Þetta er ekki fyrsta tilraun hæstv. ráðherra til þess í þessu máli því að eftir mjög alvarlegar athugasemdir, m.a. annars ráðuneytis og stofnana ríkisins við frumvarp hæstv. ráðherra, sá utanríkisráðuneytið ástæðu til að senda þeim andsvör við umsagnir annarra aðila um þetta mál. Þau andsvör svöruðu hins vegar ekki þeim álitaefnum sem bent hafði verið á. Einn sérfræðingur sagði: Hvers vegna eruð þið að fara út í þetta ef þið ætlið bara að selja vegabréfsáritanir? Af hverju seljið þið ekki bara vegabréfin beint, sömu áhrif? Það er rétt að hafa það í huga að flest þróuð ríki og raunar mörg vanþróuð ríki líka þurfa ekki vegabréfsáritanir til Íslands. Þau ríki sem þurfa sérstaklega vegabréfsáritanir eru þau lönd þar sem helst eru líkur á því að menn verði sendir (Forseti hringir.) eða fari á eigin vegum til landa Schengen-samstarfsins í ýmsum erindagjörðum, en m.a. til að sækja svo um hæli um leið og komið er til landsins.