fundur með ráðherrum vegna styrkingar utanríkisþjónustunnar.
Herra forseti. Það er full ástæða til þess að ræða þessi mál. Það hvernig nefndastörfin ganga fyrir sig er, eins og oft hefur komið fram, alveg fordæmalaust. Mig langar að koma aðeins aftur að því máli sem er á fundi atvinnuveganefndar í fyrramálið. Opinn fundur með ráðherra um grásleppumálið svokallaða, hann verður á opnum fundi hjá nefndinni klukkan níu í fyrramálið. Síðan er búið að boða fund og senda nefndarálit, til að taka málið út og það fari til 3. umræðu. Í bréfi frá lögfræðisviði Alþingis stendur í niðurlagi:
„Við meðferð atvinnuveganefndar á fyrirliggjandi frumvarpi um veiðistjórn grásleppu var bent á að leggja þyrfti heildstætt mat á áhrif frumvarpsins á stjórnarskrárvarin réttindi og að það væri stjórnskipuleg skylda löggjafans að tryggja að slíkt mat færi fram, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 20/2022. Þá væri rétt að meta áhrif breytinganna á stofn grásleppu í samræmi við lög um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Til að unnt sé að vinna slíkt mat þarf aðgang að gögnum og sérþekkingu á þeirri löggjöf sem frumvarpinu er ætlað að breyta. Slík sérþekking er til staðar hjá atvinnuvegaráðuneyti og stofnunum þess (Forseti hringir.) en einnig er unnt að leita óháðs lögfræðiálits. Slík sérþekking er ekki hjá skrifstofu Alþingis.“
Við þurfum að leita til ráðuneytisins, að það verði dregin til baka ákvörðun nefndarinnar um að fara til Lagastofnunar Háskóla Íslands. Okkur í minni hlutanum eru algerlega allar bjargir bannaðar (Forseti hringir.) í því að leita lagalegrar skyldu þingsins um málsmeðferð í nefndinni, lagalegrar skyldu samkvæmt dómi Hæstaréttar frá árinu 2022. (Forseti hringir.) Þetta hyggst stjórnarandstaðan — sem flissar eins og einhver á ráðherrabekknum var að gera núna, hún meðhöndlar lýðræðið með þessum hætti.