157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[17:59]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og hvet til þess að þetta sé skoðað við áframhaldandi endurskoðun hjá viðkomandi ráðuneyti, einhverja ákveðna grunnkunnáttu sem nýtist í samhengi við öryggi en líka í því stóra verkefni að hjálpa til við samlyndi þeirra ólíku og fjölbreyttu einstaklinga sem hér búa.

Í annan stað langar mig til að spyrja hv. þingmann um hlutverk Samkeppniseftirlitsins. Eftirlit skiptir gríðarlega miklu máli í þessu verkefni og hér er talað um að Samkeppniseftirlitið eigi að sinna töluvert umfangsmiklu hlutverki. Því vil ég spyrja hv. þingmann: Hefur þessi viðbótarskylda og ábyrgð sem Samkeppniseftirlitið hefur verið að fullu fjármögnuð? Að lokum vil ég spyrja út í tímasetningu frekari endurskoðunar. Hvernig sér hv. þingmaður tímalínuna fram undan? Það er mikilvægt að við höldum áfram að rýna löggjöfina og gera hana enn betri eftir því sem reynsla kemst á mál.