157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[18:01]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Sigurður Helgi Pálmason) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka síðara andsvar. Varðandi íslenskukunnáttuna þá er hún alveg lykilatriði og eitthvað sem við munum augljóslega skoða. Varðandi Samgöngustofu þá fylgdi ekki nein aukafjárheimild þegar lögunum var breytt síðast en það er eitthvað sem við þurfum náttúrlega að skoða núna út frá þessu aukna hlutverki sem Samgöngustofa mun taka að sér. Ég vil líka koma því að að það er ekki verið að gefa neinn afslátt í þessu núna. Það er verið að fara í þessar breytingar, það á að gera það vel. Varðandi tímalínuna þá er mjög erfitt fyrir þingmann að segja hvenær þetta mun allt koma fram, en ég veit að ráðuneytið er á fullu og mun hvergi stoppa.