leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigurði Helga Pálmasyni fyrir framsöguna, hann gerði það vel eins og hans er von og vísa. Mig langar til að forvitnast um starfshóp sem var skipaður svo snemma sem í nóvember 2024 og var starfandi, eftir því sem ég best vissi, fram á þetta ár og honum var ætlað í rauninni að endurskoða lögin. Okkur þótti það reyndar skrýtið að það væru ekki komnar fram tillögur frá þessum hópi þegar frumvarpið kom fram á 156. þingi eða þegar fór að líða á það þing. Getur hv. þingmaður upplýst mig um það hvort þessi hópur hafi skilað af sér og hvort tillögur hans sjáist í þessu frumvarpi eða hvort þessi starfshópur sé enn að störfum? Einnig langar mig til að fá upplýsingar hjá þingmanninum, ef þær eru fáanlegar, varðandi fjölda bifreiða á hverri stöð. Eftir því sem ég best veit þá er ekkert lágmark í þeim efnum, ég verð alla vega ekki var við það. Áður var það þannig að það var nóg að vera með einn bíl og þá gastu verið með stöð. Síðan verður þessi breyting hér en ég get ekki séð að það sé sett neitt lágmark, enginn lágmarksfjöldi bifreiða sem er á bak við hverja stöð. Ég velti fyrir mér hvort það sé t.d. nóg að vera með tvær bifreiðar til að uppfylla skilmála um að vera með stöð.