leigubifreiðaakstur.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir andsvarið. Ég veit til þess að nefndin er enn að störfum. Hún er ekki búin að skila af sér. Það má vænta þess að það verði vonandi á næstu mánuðum. Ég get ekki gefið nákvæma tímasetningu á því en þá kemur kannski þessi seinni hluti sem hæstv. ráðherra hefur talað um að komi sem er seinni breytingin og viðbætur við lögin. Þingmaður spyr hvort það sé nóg að það sé einn aðili eða tveir á stöð. (ÓA: Lágmarksfjöldi. )Já, það er ekki settur — það var talið að lágmarksfjöldi bifreiða gæti mögulega ekki samrýmst 31. gr. laga um EES-samninginn, þ.e. að stofnsetning sé rétt. Sú leið sem við erum að fara í frumvarpinu er til þess fallin að ná svipuðum markmiðum. Það er í raun og veru það sem ég get sagt um það.