157. löggjafarþing — 75. fundur, 2. mars 2026.
leigubifreiðaakstur.
84. mál
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir seinna andsvar. Er það of dýrt fyrir einn aðila? Ég tel svo ekki vera vegna þess að það sem við erum að gera núna tengist öryggi og ef við ætlum að að setja upp þannig kerfi að við séum virkilega að fara þá leið að passa upp á öryggi farþega þá verður að fara í þessi kerfi þó að þau séu dýr, það er kostnaðurinn.