157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[18:09]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Sigurður Helgi Pálmason) (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni andsvarið. Þetta frumvarp og meðfylgjandi reglugerð taka einmitt á rót þess stjórnleysis sem skapast hefur. Við erum að reyna að loka þessum glufum sem eru, við erum t.d. að taka á þessum hluta sem kemur að hátterni. Við vitum varðandi þessi mál sem hafa komið upp að ef við hefðum verið með mjög skýrar hátternisreglur þá hefði þessi maður ekki farið strax að vinna. Þarna erum við í raun og veru að gefa Samgöngustofu ramma og við erum að setja skýran ramma. En ég get alveg sagt það sem ég sagði áðan: Við erum ekki búin að fara alla leið. Það er margt sem á eftir að gera og það mun koma á næstu mánuðum og ég veit, miðað við samtal við hæstv. ráðherra, að við erum ekkert búin.