leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022, um öryggi og starfsumhverfi. Það er frá innviðaráðherra. Þetta mál hefur fengið töluverða umfjöllun hér á þinginu. Við ræddum það á 156. þingi, það var afgreitt í gegnum nefnd og hér varð til nefndarálit með breytingartillögu. Það var mikil umræða í nefndinni. Þetta var umdeilt mál sem fékk mikla athygli, m.a. fjölmiðla, og mörg atvik sem voru í farvatninu á þessum tíma sem kölluðu einmitt á athygli fjölmiðla. Það mátti eiginlega skilja þetta þannig að það ríkti hálfgerð óöld í þessum bransa og varðaði m.a. á sínum tíma leigubílaakstur frá Keflavík og ja, meint svindl á prófum og ýmislegt fleira sem var nefnt, að erlendir aðilar hefðu í rauninni fengið fría ferð í gegnum prófin og hér hefðu þá verið aðilar með próf sem verðskulduðu það ekki.
Þetta frumvarp innviðaráðherra var í rauninni endurskoðun á lögunum eins og kveðið hafði verið á um. Það var byggt á því að það væri verið að skoða reynsluna af lögunum sem komu fram 2022 og fengu töluverða umfjöllun. Það var svo sem ekki í tómarúmi sem ákveðið var að koma fram með þessi lög. Við sem eldri erum munum eftir því ófremdarástandi sem var stundum niðri í miðbæ Reykjavíkur þegar það voru greinilega allt of fáir leigubílar í boði og slegist um hvern bíl. Það komu upp atvik þar sem því var borið við að öryggi farþega væri í verulegri hættu, sérstaklega vegna þess að það væru þá aðilar sem væru ekki beinlínis að keyra á leigubílum, voru kallaðir skutlarar o.s.frv. Við umfjöllun þessa máls kom í ljós að ráðherra hafði skipað starfshóp um endurskoðun laganna strax í nóvember 2024 og það er athyglisvert að mínu mati að hann sé enn þá starfandi þrátt fyrir að við séum í rauninni búin að fjalla um þetta mál núna í tvígang. Ég velti fyrir mér af hverju þetta gangi svona hægt, af hverju ekki var hægt að klára bara þessa vinnu núna og þá lægi þetta fyrir. Væntanlega er það vegna þess að frumvarpið byggir ekki á vinnu starfshópsins, því að það hefur m.a. komið fram hér að starfshópurinn er enn að störfum og er ætlað að vinna að einhverjum frekari breytingum á lögunum. Í starfshópnum voru tveir fulltrúar frá ráðuneytinu, tveir fulltrúar Samgöngustofu og einn fulltrúi frá ríkislögreglustjóra.
Það er fyrirskrifaður tilgangur og tilefni frumvarpsins að tryggja öryggi farþega og efla þannig traust almennings til leigubifreiðaaksturs og ég held að það sé alveg rétt yfirskrift. Auðvitað skiptir máli að fólk upplifi sig öruggt í leigubílum og það má kannski nefna það sérstaklega að leigubílstjórar eru oft þeir aðilar sem eru að sinna t.d. akstri með fatlað fólk og mikilvægt að þar veljist áreiðanlegt fólk til starfa. Tilgangur frumvarpsins var að tryggja öryggi farþega og efla þannig traust almennings til leigubílaaksturs, eins og ég sagði, en jafnframt að tryggja sanngjarna og gagnsæja verðlagningu. Byggir það m.a. á því að hér var augljóslega verið að svína á fólki, t.d. í flutningum frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur. Ef ég man rétt lenti einn hv. þingmaður í því akkúrat þegar þetta mál var til umræðu á sínum tíma, hv. þm. Bergþór Ólafsson, ef ég man rétt.
Helsta gagnrýnin sem við í stjórnarandstöðunni höfum haft uppi er kannski að frumvarpið leysi í rauninni ekki úr þeim vandamálum sem til staðar eru af því að lögin voru í sjálfu sér ekki vandamálið heldur var það framkvæmd laganna. Vandamálið var sem sagt ekki stöðvaskyldan heldur framkvæmd á núgildandi lögum, sem var verulega ábótavant. Ég nefndi áðan þetta með prófin og að í þessa starfsgrein væri að veljast fólk sem uppfyllti ekki þær kröfur sem við viljum gera til slíkra einstaklinga. Var athygli ráðherra m.a. vakin á því að það væri skynsamlegra að nýta lagaheimildina sem hann hefur í formi þess að setja reglugerðir. Ráðherrann hafði ágætistækifæri á grundvelli heimilda sinna til að setja fram þessar reglugerðir. Þar voru t.d., svo maður nefni nú dæmi, reglugerðir um hvað teldist viðeigandi starfshæfni og hvaða brot hefðu áhrif á það t.d. hvort orðspor ökumanna teldist gott eða ekki, framkvæmd leyfisveitinganna og þá hvaða gögn og vottorð ættu að fylgja umsóknum, nánari skyldur rekstrarleyfishafa, eins og kemur fram í 8. gr. laganna, og eftirlit með gjaldmælum. Það var nú þó nokkur umræða varðandi gjaldmælana og undir hælinn lagt jafnvel hvort sumir væru yfirleitt með gjaldmæli. Svo var það hvernig verðskrá ætti að vera aðgengileg viðskiptavinum þannig að við værum hér ekki endurtekið að lenda í þeirri stöðu að það væri ósamkomulag þegar til áfangastaðar væri komið hvert verðið hefði átt að vera. Það skyldi að sjálfsögðu vera aðgengilegt viðskiptavinum þannig að menn gætu skoðað skrána fyrir fram eða fengið rétt verð og réttar upplýsingar og það væri þá gjaldmælir sem væri rétt stilltur. Síðan að leigubifreiðar skyldu gangast undir sérstaka leyfisskoðun og leigubifreiðar skyldu auðkenndar sérstaklega og þá að tilgreina hlutverk og skyldur leigubílstjóra. Síðan var það auðvitað framkvæmd vettvangseftirlits lögreglu ef eitthvað færi úrskeiðis.
Það kann að vera að það hafi verið eitthvað í lögunum sem þurfti lagfæringar við en það hefur ekki, alla vega sé ég það ekki, verið ávarpað sérstaklega að menn hafi horft til laganna og bent á að það væru einhverjir verulegir vankantar á þeim. Það hefur fremur snúið að því að reglugerðarákvæðinu hafi ekki verið beitt og því hefði í rauninni verið hægt, ætla ég að leyfa mér að segja, að innleiða flest allt af því sem við erum hér að samþykkja að verði fram haldið. Það hefði verið hægt að klára það á þessum tíma sem við höfum verið að fjalla um þetta frumvarp. Það hafa verið fleiri gagnrýnisraddir og ég nefndi þetta með að svindlað hafi verið á prófunum en einnig þetta varðandi gjaldmæla og gjaldskrár og reglugerðarheimildir ráðherra.
Mig langar til að nefna að ég var með hérna í spurningum áðan að það eru lagðar nokkuð ríkar kröfur á stöðvarnar og ég vil leyfa mér að segja: Ef við erum ekki með einhvers konar lágmarksfjölda bifreiða á hverja stöð þá óttast ég varðandi þau forrit sem þurfa að vera á takteinum — fyrir okkur sem þekkjum kannski aðeins hvað það kostar að vera með öflugt tölvukerfi — að það verði kannski ekki á færi nema stærri stöðvanna að vera með mögulega það upplýsinganet eða þær upplýsingar sem skylda er að standa skil á. Ef maður horfir t.d. líka á að slíkt kerfi skuli sæta eftirliti og fara jafnvel í árlega skoðun, þá velti ég fyrir mér hvaða fjárútlát séu þar. Mér sýnist að þetta gætu orðið nokkuð stórar upphæðir, sérstaklega þá fyrir minni stöðvar, þó að það væri kannski auðveldara fyrir þær stærri. Ég er einnig örlítið skeptískur af því að nú hefur það verið ítrekað, mig minnir að það komi fram í nefndarálitinu og alla vega kom það fram í umræðum, að það sé mikilvægt að menn geti keyrt fyrir fleiri en eina stöð. Ef leigubílstjóri er að keyra fyrir nokkrar stöðvar, hvernig ætlar hann þá að halda utan um það, varðandi upplýsingar frá bílnum um fyrir hvaða stöð hann er að keyra hverju sinni? Ég held að það hljóti að verða eilítið ruglingslegt.
Frumvarpið ber það með sér að það er verið að taka stöðvaskylduna aftur upp hérna á Íslandi og við höfum fengið athugasemdir, m.a. frá ESA, um stöðvaskylduna. Ég sé kannski ekki alveg í fljótheitum hvernig menn ætla að losa sig undan þeirri athugasemd. Kannski felur það í sér, eins og hv. framsögumaður nefndi hérna áðan, að það væri nóg að hafa tvær bifreiðar á stöðinni, það væru alla vega ekki ströng mörk á því, þannig að það þyrfti að ná ákveðinni stærð og einnig ef bifreiðum er heimilt að keyra fyrir fleiri en eina stöð.
Ég nefndi hérna áðan að stafræn kerfi séu tekin út árlega og ég ætla að leyfa mér að segja og ítreka það að þetta hefur örugglega í för með sér töluverð fjárútlát. Stöðvarnar þurfa að vera með farveg fyrir kvartanir neytenda og ég hef reynt það nýlega á eigin skinni þar sem aðili á mínum vegum hefur verið að keyra út vörur og lenti í því að vera að fara með vörur í hús og lagði mögulega eilítið klunnalega. Þar kom að leigubíll sem vildi komast í það stæði og var bílstjórinn hinn fúlasti yfir því hvernig bílnum var lagt. Hann keyrði bílinn í rauninni þannig að viðkomandi starfsmaður gat ekki hreyft sinn bíl og ekki farið úr stæðinu og hélt yfir viðkomandi mikla eldmessu um útlendinga, áttaði sig ekki á því að þarna var reyndar um Íslending að ræða sem var að keyra út, og var ógnandi við starfsmanninn. Ég hringdi á þessa stöð og gerði athugasemdir við þetta framferði bílstjórans og ég ætla að segja að mér hafi verið tekið með kostum. Það var vel að því staðið hvernig þessi kvörtun var móttekin. Auðvitað veit ég ekki hvort viðkomandi aðili hafi fengið tiltal en því var alla vega sýndur skilningur að svona gera menn ekki. Því tel ég, eins og kemur fram hér, að það sé nauðsynlegt að hafa farveg fyrir kvartanir neytenda.
Síðan er hér sagt að stöðvum sé skylt að tilkynna stjórnvöldum að ökumenn fari ekki að fyrirmælum laga. Mér finnst það líka vera mikilvægt. Síðan á leigubifreiðastöðin að hafa upplýsingar um rekstrarleyfishafann, atvinnuleyfishafa sem er þá að keyra á bifreið í eigu rekstrarleyfishafa, sem hefur afgreiðslu á stöðinni. Það eru leigubifreiðar sem eru tengdar stöðinni og skráningarnúmer þeirra, gjaldmælar og raðnúmer þeirra leigubíla sem tengdir eru stöðinni, greiðslufyrirkomulag og endanlegt heildarverð í leigubifreiðum sem tengdar eru stöðinni þegar ferð er seld, fyrir fram samið eða áætlað og svo endanlegt heildargjald áður en það hefst. Nú er það þannig að ég held að það sé draumur okkar Íslendinga þegar við höfum farið til útlanda og notað þessar farveitur, sem eru ekkert ósvipaðar Hoppi hérna heima — það er auðvitað ákaflega góð þjónusta að geta fengið upplýsingar um það fyrir fram hvaða bíl þú ert að fá, hvert verðið er á ferðinni og hvaða bílstjóri er að keyra. Það er auk þess jafnvel hægt að biðja um sérstaka bílstjóra, t.d. eins og að bílstjórinn sé kona, þannig að það eru margir sniðugir möguleikar í þessu.
Ég vil segja um þetta frumvarp að ég sé í rauninni ekki að það bæti svo miklu við þau lög sem þegar eru í gildi. Ég held að það væri skynsamlegast fyrir ráðherrann að vera duglegur að beita reglugerðarákvæðum. Auðvitað eigum við síðan eftir að sjá hvaða niðurstaða verður úr þessu öllu. En ég held að það hefði verið betur af stað farið með að klára að semja þessar reglugerðir í stað þess að fókusera á lög, sem ég held að hafi í rauninni, þegar allt er skoðað, reynst ágætisefniviður í það að hér verði sett verulega breytt og betri löggjöf um leigubíla, þó að mögulega hafi verið einhverjir skavankar á þeirri löggjöf.