leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni ræðuna. Mér er svo sem kunnugt um afstöðu Miðflokksins í þessu máli og hefur verið það í dágóðan tíma. Það var ákveðin hughreysting að heyra það frá þingmanninum að þau kerfi sem væru hér undir til að halda utan um ferðir viðkomandi farartækis og ferðir viðkomandi farþega væru kannski ekki eins dýr og ég hafði hug á að mögulega væri. Ég, eins og fleiri, nota Google Maps, frú forseti, en það er ekkert skráningarkerfi beinlínis á því hjá mér. En það er auðvitað gott ef það er rétt að þessi kerfi séu kannski ekki eins dýr og maður hefði haldið.
Mig langar þó til að velta því upp með þingmanninum hvernig hann sjái það fyrir sér þegar verið er að leita að upplýsingum í svona kerfi, hvort það gæti ekki orðið töluverður höfuðverkur hjá eftirlitsaðilanum að finna nákvæmt tímabil og nákvæma staðsetningu o.s.frv. Einnig langar mig að spyrja, af því að hér hefur verið vikið að því að ESA hafi gert athugasemdir við fyrirkomulagið á leigubílaakstri á Íslandi og Samkeppniseftirlitið hefur m.a. komið inn á það og bent á að hér hafi verið uppi ákveðnar viðskiptahindranir sem núverandi löggjöf hafi þó leyst úr, miðað við áform innviðaráðherra stendur alla vega til að vinda að einhverju leyti ofan af þessu: Hefur þingmaðurinn áhyggjur af því að við fáum aftur yfir okkur ESA?