leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir spurningarnar, prýðisspurningar. Varðandi eftirlitskerfið þá er þetta í rauninni tvöfalt kerfi, annars vegar eftirlit og skráning og hins vegar geymsla eða varðveisla. Ég hef sjálfur starfað fyrir fyrirtæki sem eru með slík kerfi og þar er hægt að sjá, ekki bara klukkan hvað ég lagði af stað heldur hver meðalhraðinn var á ákveðnum kafla og hvar ég stoppaði. Ég hef fengið símtöl í slíkri þjónustu af því að ég hafði stöðvað þar sem ég var ekki vanur að stöðva. Ég ætla svo ekkert að fara í ástæðurnar hér enda voru þær sáraómerkilegar, ég þurfti bara að sinna lítils háttar atviki varðandi ökutækið, en þá var búið að hringja og spyrja hvort það væri allt í lagi. Hitt er svo enn þá einfaldara kerfi, þ.e. skráningin og geymslan. Það erum við að gera á hverjum degi. Við erum með t.d. í vörubifreiðaflotanum ökurita í gangi nú þegar sem skrá þetta allt saman mjög ítarlega og skrá sérstaklega ef um brot er að ræða, til að mynda gagnvart reglugerðum og lögum er varða hámarkshraða, hvíldartíma og ýmislegt fleira. Svo rennur þetta bara inn í gagnabanka, er geymt þar, og eftirlitsaðilar, í því tilfelli lögregla, geta bara mætt í hvern bíl, tengt sig við þennan ökurita og fengið upplýsingar langt aftur í tímann, þannig að það er einfalt. Ég er ekki viss um að ég hafi náð að dekka samt eða fara yfir allt sem hv. þingmaður bar upp í spurningu sinni. Ég reyni þá kannski að bregðast við því aftur í seinna.