157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

leigubifreiðaakstur.

84. mál
[18:52]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin og það var þá sennilega um ESA sem var eftir að svara. En áfram með kostnaðinn vegna þess að nú þekkir maður það ágætlega úr eigin rekstri að allt eftirlit er fremur dýrt og sérstaklega opinbert eftirlit, svo maður segi það hreinlega. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður deili með mér þeirri skoðun að mögulega sé dálítið mikið í lagt að vera með árlegt eftirlit með þessum kerfum og hvort það væri ekki skynsamlegra að lengja í hér á milli. Bæði er þetta væntanlega að einhverju leyti — þetta getur auðvitað verið einhvers konar pappírseftirlit en ég sé fyrir mér að menn vildu kannski kíkja á bíla o.s.frv. þannig að það verði umtalsvert eftirlit, sérstaklega í upphafi, og þá hefur maður pínu áhyggjur af því að kostnaðurinn fari mögulega úr böndum. Einnig langar mig til að fá álit þingmannsins á því varðandi það að geta skráð sig á fleiri en eina stöð. Nú er ég með lögheimili í nágrenni við Reykjavík og það er ekki alveg gefið að maður fái leigubíl aðfaranótt sunnudags eða laugardags í því bæjarfélagi. Sér hv. þingmaður fyrir sér að það að geta t.d. verið skráður á margar stöðvar myndi hjálpa til við að halda úti t.d. leigubílaakstri í dreifbýlinu?