157. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2026.

heimsókn forseta neðri málstofu Kanadaþings.

[13:31]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á að forseti neðri málstofu þjóðþings Kanada, hr. Francis Scarpaleggia, er staddur á þingpöllum ásamt sendinefnd. Þingforsetinn er í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera vinnuheimsókn til Íslands. Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða þingforseta og sendinefnd velkomin í Alþingishúsið og vænti þess að heimsókn þeirra til Íslands verði til að styrkja tengslin milli landa okkar.

Alþingi vottar forseta neðri málstofu Kanadaþings og kanadísku þjóðinni vináttu og virðingu og ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. [Þingmenn risu úr sætum.] — Takk fyrir.