störf þingsins.
Virðulegi forseti. Eins og svo margir hér á undan langar mig til að tala aðeins um kjördæmavikuna. Við fórum víða í þessari viku. Þar á meðal fórum við vestur á firði þar sem vikan varð örlítið ævintýralegri en við ætluðum þar sem við festumst í Djúpinu á leið inn á Ísafjörð og þurftum að kalla til Björgunarsveitina Kofra. Við fengum þar afar óvænta en dýrmæta lexíu um það hvernig björgunarsveitirnar vinna og hversu mikilvægar þær eru fyrir okkur og þetta mikilvæga starf sem þau vinna oft við mjög krefjandi aðstæður. Ég vil því nota tækifærið og þakka Björgunarsveitinni Kofra fyrir dásamlega björgun og frábæra þjónustu og hvet alla til að styðja við þeirra starf.
Mig langaði líka til að tala sérstaklega um framhaldsskólana okkar. Við fórum í heimsókn í Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Þar sem orðræðan um unga fólkið okkar hér í þessum sal og líka víða um samfélagið getur verið neikvæð, bæði um unga fólkið og skólakerfið okkar, þá langar mig aðeins til að fara yfir það. Í FB mættum við kraftmiklum og fjölbreyttum skóla sem endurspeglar vel hvernig framhaldsskólastigið er að takast á við framtíðina. Þar er öflugt bók- og verknám, sjúkraliðanám, rafvirkjun, tölvunarfræði, húsasmíði, snyrtifræði og listbrautir, auk margra fleiri hluta. Skólinn er líka í uppbyggingu og það er mjög spennandi að sjá að þau eru að byggja nýtt hús sem mun gera þeim kleift að taka við fleiri nemum í verknám.
Við áttum líka fund með nemendaráði skólans og það var ánægjulegt og eftirtektarvert hversu jákvætt nemendur töluðu um skólann sinn og starfsfólkið og hversu skýrt þau ræddu framtíð sína af ábyrgð og alvöru. Framhaldsskólar á Íslandi eru að vinna afar gott starf. Þeir eru ólíkir með mismunandi áherslur en mín reynsla af þessari heimsókn og fleirum er góð. Þar er gott starf með frábærum kennurum og fagfólki sem ber hag nemenda fyrir brjósti en ekki síður unga fólkið okkar sem leggur sig fram í lærdómi af iðni. Þessi kynslóð mun erfa landið okkar. Eftir þessa heimsókn er ég sannfærð um að framtíðin er björt.