störf þingsins.
Virðulegi forseti. Nýlega barst mér svar við fyrirspurn minni til hæstv. heilbrigðisráðherra um efnaskiptaaðgerðir. Þar er að finna ýmsar áhugaverðar upplýsingar um fjölda aðgerða sem hafa verið framkvæmdar erlendis á sjúkratryggðum einstaklingum síðastliðin ár og hafa verið niðurgreiddar af Sjúkratryggingum Íslands, niðurgreiddar af íslenskum skattgreiðendum. Niðurgreiðslan nemur hundruðum milljóna á ári og slagar í milljarð frá árinu 2022. Hundruð milljóna frá íslenskum skattgreiðendum til heilbrigðisþjónustu erlendis, bara vegna efnaskiptaaðgerða. Mér datt því í hug að spyrja hæst. ráðherra að því hvort sjúklingunum gæfist kostur á niðurgreiddri efnaskiptaaðgerð hjá innlendum aðilum með sömu skilyrðum og greinilega gilda fyrir aðgerðir erlendis. Svar hæstv. ráðherra er afdráttarlaust: Sjúkratryggðir sjúklingar geta ekki gengist undir efnaskiptaaðgerðir hjá sjálfstætt starfandi innlendum læknum. Hvernig má þetta vera? Hvernig réttlæta stjórnmálamenn þessa framkvæmd, þessa furðumeðferð á skattfé almennings bæði gagnvart sjúklingum, gagnvart læknum hér á landi og gagnvart þeim sem borga, skattgreiðendum? Ég hef sagt það áður og segi það aftur að íslenskir vinstri menn, eins og hæstv. heilbrigðisráðherra er, eru fastir í fordómum og gamaldags kreddum þegar kemur að heilbrigðismálum. Það er ótrúlegt að þeim skuli líða betur að millifæra fé íslenskra skattgreiðenda til heilbrigðisþjónustuaðila erlendis fremur en til innlendra aðila, til innlendra lækna.
Ég mun fylgja þessu eftir hér á Alþingi, en hvet líka fjölmiðla, fjórða valdið, til að taka þetta til skoðunar. Það hlýtur fleirum en mér að blöskra þessi mismunum og þessi óskiljanlega meðferð á skattfé.