störf þingsins.
Frú forseti. Það hefur ekki farið fram hjá neinum síðustu daga að staða efnahagsmála er ekki eins og best verður á kosið. Ríkisstjórnin fær stöðugt á sig aukna gagnrýni, ekki bara af hálfu almennings heldur einnig ýmissa hagaðila. Þúsundum fjölskyldna og fyrirtækja datt aldrei í hug að greiðslubyrði lána yrði svo há út árið 2026, sérstaklega hjá þeim sem eru með óverðtryggð lán. Hjá þeim sem eru með verðtryggð lán blasir annað við; skuldir sem hækka áfram um meira en 5% á ári — og dæmi er um að 40 milljóna lán hafi hækkað um 2 millj. kr. á síðustu 12 mánuðum. Aukin greiðslubyrði þýðir minni möguleika til að spara. Fjölskyldur fresta tónlistarnámi, frístundum og jafnvel nauðsynlegri læknaþjónustu. Verðbólga er því meiri háttar samfélagslegt vandamál, ekki aðeins hagfræðileg stærð.
Á sama tíma sjáum við bresti víða; vegi sem þarf að laga, brýr sem þarf að breikka, hjúkrunarrými sem dregst að byggja. Og hvenær verður nýr Landspítali raunverulega kominn í fulla starfsemi? Það er eðlilegt að fólk spyrji hvort stjórnvöld séu að missa tökin á hlutunum. Það er eitthvað sem má bara ekki gerast. Þess vegna dugar ekki að horfa bara á vextina og verðbólguna eins og það sé eina mælistikan til árangurs. Velferð er lykilatriði, öryggi og fyrirsjáanleiki fyrir fjölskyldur og fyrirtæki. Við í Framsókn erum til í samtal um lausnir og munum kynna tillögur á næstu vikum. Virðulegi forseti. Það er mikið í húfi.