157. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2026.

frumvarp um veiðistjórn grásleppu.

[14:06]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Það sést núna að fyrirhugað er að setja á dagskrá svokallað grásleppufrumvarp í þinginu síðar í dag. Það var tekið út úr nefnd í morgun. Þetta eru að mínu mati tímamót í störfum þingsins. Við erum með upplýsingar í höndunum, upplýsingar frá lögfræðisviði Alþingis, embættismönnum og öðrum hæstaréttarlögmönnum sem segja skýrt að Alþingi sé skylt að lögum, samanber ákveðinn hæstaréttardóm, að láta fara fram úttekt á þeim álitamálum sem eru í þessu frumvarpi. Þetta eru þingmenn og forseti með í höndunum. Þingmenn sem vinna drengskaparheit að stjórnarskrá kjósa, í þágu þess að halda saman ríkisstjórn, að horfa fram hjá lögbundnum skyldum sínum þar sem þeir unnu embættiseið bara í þágu ríkisstjórnarsamstarfs. Forseti Alþingis kýs að taka þátt í þessum ósóma, þessu óhæfuverki. Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum og komið virðingu þingsins á nýjan stað í lágkúru? Það er þekkt að ákveðnir ráðherrar framkvæmdarvaldsins, Svandís Svavarsdóttir, Jón Bjarnason og Bjarkey Olsen, (Forseti hringir.) hafa brotið lög með framkvæmdum sínum, brotið gegn stjórnarskrá með framkvæmdum sínum og sum þeirra verið dæmd fyrir það í Hæstarétti. (Forseti hringir.) Þetta er í fyrsta skipti sem ég veit til þess að þingmenn og forseti Alþingis með opin augun ætla að feta í fótspor þessa fólks.