157. löggjafarþing — 77. fundur,  3. mars 2026.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

153. mál
[15:17]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er auðvitað þannig að tekjur og afkoma eru ekki það sama en látum það nú liggja á milli hluta við þetta tilefni. Mig langar í seinna andsvari mínu að spyrja hv. þingmann, bara svo að þingmaðurinn fái tækifæri til að útskýra það fyrir þeim sem fylgjast með umræðunni, í ljósi breytingartillögu meiri hlutans núna þess efnis að frumvarpið taki ekki gildi, verði það samþykkt hér fyrir 1. september 2026, hvers vegna hv. þingmaður, formaður atvinnuveganefndar, framsögumaður málsins og fyrsti flutningsmaður málsins telur ekki ástæðu til að nýta það svigrúm sem meiri hlutinn skapaði sér í tíma með þessari breytingartillögu til að kalla fram þau lögfræðiálit til að grundvalla málið betur sem meiri hlutinn taldi ekki forsvaranlegt tímans vegna að kalla fram á fyrri stigum.