veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Eins og áður hefur komið fram í mínu máli þá tel ég að við séum búin að undirbyggja málið það vel að það standist alla skoðun. Þegar mál eru komin á þann stað að þeir sem bera ábyrgð á málinu telja að það sé komið á þann stað að lýðræðið eigi þá að taka endanlega ákvörðun um hvort það sé samþykkt eða ekki, þá á það að vera þannig hér á hinu háa Alþingi. Ég sé enga ástæðu til annars þótt við, málsins vegna — vegna þess að það hefur dregist svo lengi að afgreiða það — ákváðum að stíga það skref að það taki ekki gildi fyrr en 1. september en að ákvæðið um að framsalið falli út taki gildi strax með afgreiðslu frumvarpsins og samþykkt þess hér á Alþingi. Ég tel enga ástæðu til að draga það og hafa það hangandi áfram fram eftir vori og allir þeir sem stunda þessar veiðar þurfa að hafa þennan fyrirsjáanleika, að málið verði samþykkt. Við sem höfum starfað lengi á Alþingi vitum alveg að það getur ýmislegt gerst á þeim tíma sem fram undan er og stjórnarandstaðan hefur nú ekki slegið slöku við að tefja þau mál sem hún er pólitískt ósammála. Þess vegna er engin ástæða til þess að tefja þetta mál því við teljum það vera fullburðugt til að fá afgreiðslu og sé fullskoðað frá öllum hliðum.