157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

þingmaður biðst afsökunar á orðum sínum.

[15:00]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Flf):

Virðulegi forseti. Undir lok umræðunnar um frumvarp um breytingar á lögum um grásleppuveiðar hér í þingsal í gær lét ég orð falla í hita leiksins varðandi meintar hvatir þingmanna sem eru á móti frumvarpinu. Einnig nafngreindi ég einstaklinga utan þings með gagnrýnum hætti sem eðli máls samkvæmt geta ekki varið sig hér í þingsal.

Frú forseti. Ég bið alla viðkomandi innilegrar velvirðingar á þessum orðum mínum og dreg þau hér með til baka. — Takk.