157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

Störf þingsins.

[15:12]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég ætla að upplýsa ykkur um nýjustu fregnir af kostnaði við aðgerðir í loftslagsmálum. Nú, eftir þriggja mánaða bið, hef ég móttekið svör um þessa fjármuni frá tveimur hæstv. ráðherrum; menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra. Áður hafði hæstv. loftslagsráðherra svarað fyrirspurn fyrir árið 2023 og 2024 frá hv. þáverandi formanni atvinnuveganefndar fyrr í vetur um kostnað þess ráðuneytis við aðgerðir í loftslagsmálum. Því má segja að búið sé að rekja árlegan kostnað fyrir árið 2024 frá þremur hæstv. ráðuneytum. Tölurnar eru annars vegar 14 milljónir hjá menntamálaráðuneytinu og hins vegar 51 milljón hjá menningarmálaráðuneytinu, að viðbættum þeim 524 milljónum sem áður hefur verið greint frá. Frá Loftslagsráði eru þetta samtals 590 milljónir. Það er sem sagt búið að rekja frá þessum þremur ráðuneytum 590 milljónir fyrir árið 2024. Og hvað er það mikið af heildarútgjöldum til aðgerða í loftslagsmálum það árið, frú forseti? Já, nákvæmlega 3,3% af þeim rúmlega 18.000 milljónum sem runnu það árið til loftslagsmála. Það verður fróðlegt að fá frekari svör því að enn skortir skýringar á 17.500 milljónum einungis á því eina ári. Fróðlegt verður að sjá skýringar hæstv. ráðherra við spurningu minni um hver árangurinn er, hvernig hann er mældur. Hæstv. menningarmálaráðherra greinir frá því að hafa sett m.a. fjármuni í eitthvað sem þau nefna grænfánann, en hvað árangur varðar bendir hæstv. ráðherra á væntanleg svör frá hæstv. loftslagsráði sem hafði áður fengið tækifæri til að svara þeirri spurningu.

Hæstv. menningarmálaráðherra bendir á ýmislegt þegar kemur að árangri: Grænt bókhald, utanumhald á kolefnisspori, innleiðing á aðgerðum í ramma Grænna skrefa í ríkisrekstri, ferðavenjukannanir, (Forseti hringir.) sjálfbærniskýrslur, skráningar, samantektir. Takið eftir, frú forseti. Þeir reyna ekki einu sinni að halda því fram (Forseti hringir.) með þessum svörum að einhver árangur hafi náðst. Þeir reyna ekki einu sinni að halda því fram. Þeir reyna ekki að halda því fram að það sé einhver mælanlegur árangur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)