afgreiðsla frumvarps úr velferðarnefnd.
Frú forseti. Ég verð því miður að taka undir með öðrum hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar varðandi þá þróun sem hefur átt sér stað hér inni linnulaust frá fyrsta degi þessarar ríkisstjórnar en bara eykst dag frá degi í því virðingarleysi sem Alþingi og störfum þess er sýnt, því lýðræðislega samtali sem við eigum að eiga hér, afla okkur gagna og upplýsinga frá þeim aðilum í samfélaginu sem best þekkja til. Öllu þessu er einfaldlega hafnað og talað um að hér sé um pólitík að ræða.
Ég vil vekja athygli forseta á því að þrátt fyrir að meiri hlutinn kjósi að hunsa, ekki bara fjármálaráðuneytið, fjármálaráð, Seðlabankann og fleiri í því máli sem á að tengja almannatryggingar við launavísitölu þá hefur nú Læknafélag Íslands, sem hefur auðvitað mikla þekkingu á stöðunni sem varðar þá einstaklinga sem þurfa að þiggja örorkubætur, áhyggjur af því máli hvað þetta varðar.
Ég vil beina því til forseta að stíga hér inn í og gera Alþingi það einfaldlega kleift að vinna sína vinnu. Þetta er ekki allt bara pólitík. Pólitíkin þarf að vera vel unnin.