157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

ETS-kerfið, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

[17:14]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér til þessarar umræðu. Það verður auðvitað að hafa í huga markmið þeirra reglna sem hér eru undir þegar þetta er rætt. Markmið ETS-kerfisins, ef við horfum sérstaklega til flugsamgangna og siglinga, er að ýta fólki og flutningum inn í járnbrautarlestar. Það er einfaldasta útskýringin á þessu, bara til að koma þessu í samhengi, þ.e. að fólk fari styttri leiðir frekar með lestum en flugi. Það er svona kjarnaástæðan. Slíkt á auðvitað ekki við á Íslandi og það hefur verið algerlega ótrúlegt að fylgjast með því að íslensk stjórnvöld hafa á köflum meira að segja ekki sótt þær undanþágur sem beinlínis eru skrifaðar inn í regluverkið sem um þann þátt fjallar og á ég þá sérstaklega við siglingarnar. En hvað flugið varðar þá hefur, í prýðisgóðri skýrslu Viðskiptaráðs, verið dregið fram það sem þingmenn Miðflokksins og fleiri hafa reynt að benda á í gegnum þetta kjörtímabil og síðasta, þ.e. að þetta er fjarlægðarskattur, gríðarlega ósanngjarn þar sem engar lausnir eru til, t.d. hvað flugið varðar, gagnvart því sem verið er að reyna að ná fram. Lausnirnar eru ekki til staðar sem verið er að reyna að hraða þannig að þetta er bara eins og hver annar venjulegur skattur.

Í skýrslu Eflu, sem var unnin fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, eru ágætisspár um það með hvaða hætti þessi gjöld muni þróast. Í umfjöllun um hana í Viðskiptablaðinu segir varðandi flugið:

„Áætlað er að íslenskir flugrekendur hafi greitt um 4 milljarða í kaup á loftslagsheimildum árið 2024. Í spá Eflu er gert ráð fyrir að kostnaðurinn verði um 6 milljarðar árið 2025 og 7 milljarðar árið 2026. Hann aukist síðan jafnt og þétt og verði kominn upp í 11 milljarða árið 2030.“ — Íslenskir flugrekendur verða búnir að borga 11.000 milljónir árið 2030. Hver haldið þið að borgi þessar 11.000 milljónir? Það eru auðvitað bara fyrirtæki og heimili þessa lands. Það er ekki öðrum til að dreifa og auðvitað endar þetta allt hjá einstaklingum því að fyrirtæki velta þessum kostnaði út í verð á vöru.

Ef við horfum til skipafélaganna úr sömu skýrslu segir, með leyfi forseta:

„Árið 2024 var fyrsta árið sem skipafélög sem falla undir kerfið þurftu að gera upp losun sína að hluta. Í skýrslu Eflu er því spáð að kostnaðurinn hafi numið 430 milljónum króna í fyrra og verði kominn upp í tæplega 900 milljónir árið 2026. Árið 2027 og 2028 muni kostnaðurinn síðan nema tæplega 1,4 milljörðum árlega.“ — 1.400 millj. kr. í aukinn kostnað í skipasiglingum, flutningi á vörum til og frá landinu. Hljómar þetta eins og eitthvað sem tekur í einhverju tilliti mark á íslenskum hagsmunum? Ég held því miður að það hafi verið sett einhvers lags héraðsmet í sjálfsblekkingu þann 16. maí 2023 þegar Ursula von der Leyhen fékk sér kaffibolla með þáverandi forsætisráðherra og báðar mættu þær hróðugar fyrir framan myndavélarnar í ráðherrabústaðnum í aðdraganda Evrópuhátíðarinnar sem hér var haldin og lýstu því yfir að Ísland hefði fengið undanþágur. Ísland fékk bara sömu aðlögun og flestar þær þjóðir sem eftir því óskuðu.

Það sem blasir við er síðan kerfið bara eins og það er 1. janúar 2027. Ég verð því að viðurkenna að þegar hæstv. ráðherra upplýsti hér um það sem lá svo sem fyrir, fyrir þá sem það hafa skoðað, að júlí 2026 — sem sagt í júlí og nú erum við stödd í mars — verði endurskoðun Evrópusambandsins lögð fram. Þetta er handan við hornið. Mér þótti línan sem lögð var hér, hvað varðar samningsmarkmið og með hvaða hætti væri horft til þess að hagsmunagæsla Íslands skilaði einhverju, vera heldur rýr. Ég vona að hæstv. ráðherra komi aftur inn á það og reyni að fylla í þá mynd í seinna skiptið sem hæstv. ráðherra kemur inn í þessa umræðu, undir lokin. Þegar Ítalir, vinir okkar, vilja gagngera endurskoðun þá er fokið í flest skjól því að þeir eru nú kannski yfirleitt rólegir yfir því hvernig hlutirnir eru raunverulega en gera hlutina eins og þeim sýnist. En það blasir við að þeim hugnast ekki það ófullkomna kerfi sem hér er undir.

Hæstv. ráðherra sagði áðan að það væri plús sem við nytum vegna endurnýjanlegrar orku. Það er á misskilningi byggt, grunnstaðan er hærri. Sá punktur sem við byrjum að mæla út frá er okkur nefnilega mótdrægur á grundvelli árangurs á fyrri stigum en það er ekki plús. Það er grundvallarmisskilningur, sé þetta raunveruleg skoðun hæstv. ráðherra. Hæstv. ráðherra nefndi hér áðan að sérlausnir hefðu verið kreistar fram. Það er auðvitað þannig að það eru engar sérlausnir hvað siglingar varðar og sérlausnin hvað flug varðar er bara sú tímabundna aðlögun sem allir fengu sem eftir henni óskuðu og tekur í engu tillit til þeirra gríðarlegu hagsmuna sem eru undir fyrir íslensk heimili og fyrirtæki, að flugstarfsemi geti verið öflug á Íslandi hér eftir sem hingað til. Það er auðvitað áhyggjuefni að við séum hér stödd í mars með þetta útspil Evrópusambandsins yfirvofandi í júlí þar sem á að leggja fram tillögur að einhvers lags endurstillingu þessa kerfis og það er einhvern veginn ekki hægt að teikna upp gleggri mynd af því með hvaða hætti íslenskra hagsmuna verður best gætt í þeirri endurskoðun. Það er síðan þannig að öll umræða um að fanga og farga kolefni — við sjáum því miður með hvaða hætti þau verkefni sem tengjast slíkri snákaolíusölu að undanförnu hafa farið; þau eru ekki öll alslæm en þau hafa býsna mörg farið illa. Ég held því miður að menn séu að teikna hér upp einhverjar skýjaborgir þar sem allt endar mínusmegin í kladdanum.

En mig langar hér, af því að nú styttist tíminn sem ég hef til ráðstöfunar, til að koma inn á kaflann í skýrslu Eflu sem var unninn fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, þar sem reynt er að ná utan um heildaráhrifin af þessu bixi öllu. Um hann segir í áðurnefndri grein, með leyfi forseta:

„Samkvæmt skýrslunni var kostnaður íslenskra fyrirtækja vegna kaupa á losunarheimildum um 5,5 milljarðar króna árið 2024, en tekjur ríkisins sama ár af sölu úthlutaðra losunarheimilda um 700 milljónir“ — Eins og ráðherra kom inn á áðan. — „Spár um kostnað íslenskra fyrirtækja gera ráð fyrir að hann verði tæplega 5 milljarðar árin 2025 og 2026, en margfaldist síðan árlega. Árið 2030 verði kostnaðurinn síðan í kringum 28 milljarðar króna.“ —28.000 milljónir á ári frá íslenskum fyrirtækjum í gagnslaust verkefni því það er ekkert sem bendir til þess að neitt af því sem þarna gengur á sé raunverulega að hraða þeirri vinnu sem snýr að minnkaðri kolefnislosun. Þetta er bara almennur skattur sem lendir á íslenskum fyrirtækjum og fyrirtækjum víðar en hann er svo sérstaklega grimmur á Íslandi vegna landfræðilegrar legu okkar, þessi fjarlægðarskattur sem hér um ræðir. Það er óboðlegt, hæstv. ráðherra, að ekki sé birt skýrari mynd af því hver samningsmarkmiðin eru, hver markmið íslenskra stjórnvalda, sem bera ábyrgð á því að verja hagsmuni Íslendinga, íslenskra fyrirtækja, íslenskra heimila, eru gagnvart máli sem á að birtast í Brussel í júlí. Í júlí er bara eftir korter í samhengi hlutanna. Það er bara örstutt fram í júlí og við vitum að meginhluta til hvað við verðum að bardúsa í þinginu þangað til. Ég hvet virðulegan ráðherra til að reyna að fylla betur inn í þessa mynd í seinni ræðu sinni hér við þessa umræðu vegna þess að hagsmunirnir eru svo miklir. Við getum bara rifjað upp að daginn eftir að Play féll var reikningur upp á 1,2 milljarða, ef ég man rétt, á eindaga hvað varðar kolefnisgjöld. Icelandair er með milljarða, Eimskip — við getum nefnt öll þessi félög. Þetta er algerlega óforsvaranleg staða á meðan menn sýna ekki fram á með sannfærandi hætti að það sé verið að gera allt sem hægt er til að losa okkur undan ósanngjarnasta hluta þeirra byrða sem lögð eru á íslensk fyrirtæki og heimili undir þessu regluverki.