157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

ETS-kerfið, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

[18:04]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu sem hefði að ósekju mátt vera miklu lengri þótt samið hafi verið um ræðutímann með þessum hætti. En vonandi fáum við tækifæri til að ræða þessi mál hér aftur við ráðherrann eða jafnvel fleiri ráðherra.

Ég vil byrja á því að mótmæla harðlega þeirri lýsingu hæstv. ráðherra sem fólst í því að lýsa ETS-kerfinu sem fyrsta kerfi sinnar tegundar, þessu viðskiptakerfi. Ég get bara bent á það að svona kerfi hafa verið við lýði lengi og mætti kannski líta til spilavíta í þessu sambandi, þar sem menn setja inn peninga í einhverri von um að græða og safna saman í pott sem er síðan deilt út með einhverjum handahófskenndum hætti en reglan þar er auðvitað sú að þar vinnur húsið alltaf og það er það sem þetta kerfi snýst um líka. Að þessum potti sé safnað saman í einhverja sjóði og þeim deilt út af embættismönnum með einhverjum óskipulögðum og ofboðslega ógagnsæjum hætti er bara enn eitt sjóðasukkið. Það mætti kannski raunverulega lýsa ETS í stórum dráttum þannig. Því hefur líka verið haldið fram að loftslagsávinningur hafi verið af þessu og ég hlýt að spyrja aftur hver raunverulegur loftslagsávinningur hefur verið fyrir Ísland. Hér er nefnt að það hefur verið samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda. Allt í lagi, gott og vel. En hver er ávinningur Íslands af slíkum samdrætti? Það mætti halda því fram að Kína og Indland jafni þessa losun á svona 15–20 mínútum, ef það er einhver samdráttur á Íslandi að þessu leyti. Það vantar sem sagt greiningu á því hver raunverulegur ávinningur er af þessu kerfi.

Mig langar í fyrsta lagi aðeins að víkja að ETS-kerfinu og síðan í öðru lagi síðar að ETS2 kerfinu sem verið er að innleiða í þessu. Það er sambærilegt kerfi, ekki tengt, en er fyrirhugað að reka samhliða þessu kerfi. Mér finnst skipta máli að menn þurfi í raun að svara því hvaðan þessar kvaðir sem fylgja ETS-kerfinu, sem er viðskiptakerfi Evrópusambandsins, eru í rauninni komnar. Við erum t.d. ekki í Evrópusambandinu, við erum í EES. Umhverfismálin eru hluti af EES-samningnum og það er sérstakt umhugsunarefni og rannsóknarefni í rauninni af hverju umhverfismálum var sérstaklega bætt við EES-samninginn á sínum tíma. Það tengist kannski ekki þessu máli sérstaklega en það sem liggur hins vegar fyrir er að skattamál eru ekki hluti af EES-samningnum en ETS-kerfið er öðrum þræði skattamál. Það er verið að leggja gjöld og innheimta skatta með þessu kerfi. Hvernig varð þetta viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir hluti af EES-samningnum? Hæstv. ráðherra lýsti því að nokkru réttilega að árið 2011 var lögum um losun gróðurhúsalofttegunda breytt og reglur þessa viðskiptakerfis leiddar þannig í lög. Þá var einkum horft til flugstarfsemi. ETS-kerfið á rætur að rekja til 2003 í Evrópusambandinu og tikkaði af stað 2005 á vettvangi ESB en þá var iðnaðarstarfsemi á Íslandi undanþegin. Það var tekin yfirveguð ákvörðun um að undanþiggja iðnaðarstarfsemi á Íslandi og það má velta því fyrir sér hvort það hafi kannski verið að yfirlögðu ráði að undanþiggja íslenskan iðnað frá reglunum þannig að hægt væri að innleiða kerfið í heild, af því að hér var nefnt að það hefði verið þverpólitísk samstaða árið 2011 þegar ETS-kerfið var tekið hingað inn. Það kann að vera, og það mætti kannski draga þá ályktun af ummælum og umræðum hér í þingsal sem voru ekki miklar um þetta mál árið 2011, að menn hafi bara ekki vitað í hvað stefndi árið 2011. Menn hafi ekki vitað það. Málið var selt íslenskum stjórnmálamönnum með því að Ísland væri undanþegið þessu; iðnaðarstarfsemi hér á Íslandi yrði undanþegin. Það var ekki fyrr en 2012 sem Ísland síðan tók fyrst þátt og þá með þessari starfsemi. Fram að þeim tíma hafði íslensk þátttaka takmarkast við skýrsluskil Evrópusambandsins. Ég vil vita hvort hæstv. ráðherra geti ekki tekið undir með mér og myndi ekki bregðast vel við fyrirspurn minni, skriflegri, um það að leggja fram öll minnisblöð embættismanna, bæði hjá Eftirlitsstofnun EFTA sem fór með málið á sínum tíma og allra embættismanna hér í ráðuneytum frá þessum árum, frá árinu 2005 og 2011, um þessi mál til að varpa ljósi á það hvað mönnum gekk til með því að setja og kæra Ísland inn í þetta skattasamstarf og það á grundvelli EES-samningsins. Þetta er ein af fjölmörgum spurningum sem ég hef til hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) og vil fá tækifæri til að reifa hér frekar í umræðum næstu vikurnar.