157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

ETS-kerfið, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

[18:10]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Við ræðum hér mikilvægt mál og það er stuttur tími sem hver og einn fær til að ræða málið þannig að ég ætla fyrst og fremst að tala um þetta bara varðandi þá hagsmuni sem eru undir fyrir íslenskt samfélag og byrja á hinu efnahagslega mikilvægi, fyrst og fremst út frá fluginu sem er stóra hagsmunaatriðið í öllu þessu máli því þetta varðar raunverulega grundvallarsamkeppnishæfni íslensks flugs til næstu ára og áratuga. Það má benda á að ferðaþjónustan, sem byggist á flugi til og frá landinu, hefur skapað um 30–35% af heildarútflutningstekjum Íslands á undanförnum árum. Árið 2024 var það um 32%. Ég man að 2018 var ferðaþjónustan og flugið með um 42% af öllum gjaldeyristekjum okkar Íslendinga þannig að það eru gríðarlega stórir og miklir hagsmunir undir. Til samanburðar var sjávarútvegurinn með um 18% af gjaldeyristekjunum, álframleiðslan með um 16% þannig að ferðaþjónustan hefur verið, út frá gjaldeyristekjum af heildarútflutningi, á svipuðum nótum og þær greinar til samans.

Útblástur Evrópu er að mig minnir um 6–7% af útblæstrinum í heiminum og þar sem við erum farin að ræða — við sjáum hver umræðan er í Evrópu, við heyrum hvað kanslari Þýskalands, Friedrich Merz, segir og forseti Frakklands, Macron, segir og fleiri leiðtogar í Evrópu, við sáum það í Davos og síðan öðrum ræðum, um samkeppnishæfni Evrópu, það er grundvallarmálið í þessu. Ef Evrópusambandið eitt og sér ætlar að vera í þessu umhverfi, eins og í fluginu — Evrópusambandið og þetta kerfi er ekki að fara að bjarga heiminum varðandi flugið. Það sem er að gerast er að það verður kolefnisleki og við sjáum það bara núna á síðustu örfáum árum að flugið er að flytjast út fyrir EES-svæðið og Istanbúl er t.d. að byggjast mjög hratt upp, það er gríðarleg fjölgun flugfarþega í Istanbúl en á sama tíma er t.d. Frankfurt í Þýskalandi að gefa eftir. Ég hygg að þeir hafi misst um 9% af sinni umferð í fyrra í Frankfurt. Þetta snýst nefnilega í grunninn um samkeppnishæfni. Það þarf að finna út hvernig við ætlum að ná saman um þetta. Flugiðnaðurinn er hvergi stærri í vestrænum heimi en á Íslandi og við þekkjum það og því er þetta mál sem snýr að fluginu einstaklega stórt í okkar umhverfi og varðar þessa grundvallarsamkeppnishæfni. Það sem við erum að vinna með hér varðandi ETS og flugið er að skerða samkeppnishæfni íslensks flugs. Meðalflugleggurinn frá Keflavík á Íslandi er um 2.400–2.500 km til Evrópu en meðalflugleggurinn innan Evrópu er 700–800 km. Þetta eru grundvallarstærðirnar. Það væri bara ágætt að fá frá hæstv. ráðherra varðandi kolefnislekann: Hvaða vinna hefur verið lögð í það að skoða þetta umhverfi út frá samkeppnishæfni og hvað hefur kolefnislekinn verið að gera núna á allra síðustu árum? Ég bendi á þessi dæmi eins og með Istanbúl í Tyrklandi og að stóru þekktu tengimiðstöðvarnar í Evrópu eru að missa umferð hjá sér á síðustu misserum. Þetta eru ótrúlegar tölur þegar horft er til þessa.

Lykilatriðið er að þetta er að skekkja samkeppnisstöðuna. Það má benda á það að það er að meðaltali minni útblástur hjá Icelandair við að flytja farþega yfir Atlantshafið heldur en í breiðþotunum sem fara beint yfir. En breiðþotur Bandaríkjamanna og í Evrópu sem fljúga beint á milli koma allt öðruvísi út í samkeppnishæfni heldur en Ísland. Þetta er raunverulega grunnurinn. En, frú forseti, þetta er svakalega stuttur tími til að ræða gríðarlega stórt efni, maður er varla byrjaður á punktunum. En þetta er sem sagt allt hluti af þessu; kolefnislekinn og samkeppnishæfni. Ég hef þá trú að það verði lengt í þessu ári þannig að það fari út 2027, það sem snýr að ETS, og það er líka mín trú að leiðtogar Evrópusambandsins sjái að sér, eins og við erum farin að heyra í orðræðunni og að til að tryggja samkeppnishæfni Evrópu, (Forseti hringir.) verði farið í að brjóta upp þetta kerfi og koma því í skikkanlegra og betra horf á næstu misserum.