ETS-kerfið, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða hið margumtalaða ETS-kerfi sem eru losunarheimildir Evrópusambandsins og einhvers konar birtingarmynd þess í hvaða farveg Evrópusambandið er komið og í raun hvernig Evrópusambandið hefur þrengt að og skert samkeppnisstöðu fyrirtækja bæði í Evrópu og þeirra sem eiga viðskipti við Evrópu. Þetta sést glögglega á því að kostnaður Icelandair á síðasta ári var 5 milljarðar og 2035 minnir mig að hann verði 11–12 milljarðar, ef ekkert verður að gert. Þáverandi hæstv. utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fékk undanþágu fyrir hönd Íslands frá þessu kerfi þrátt fyrir að embættismenn í Evrópu væru ekki búnir að átta sig á því að hingað væri ekki hægt að ferðast með lestum og að það kerfi sem væri búið til ætti ekki við um eyju eins og Ísland. Við fengum þessa undanþágu og nú er sú undanþága að renna út. Þá er alveg augljóst að það hlýtur að vera forgangsverkefni núverandi hæstv. utanríkisráðherra að fá áframhaldandi undanþágu frá þessu kerfi.
Þetta kerfi er meingallað. Evrópa er að átta sig á því að þetta kerfi er meingallað. Draghi-skýrslan svokallaða, sem oft hefur verið talað um hér í ræðustól, dregur upp í hvaða farveg Evrópa er komin út frá samkeppnisstöðu fyrirtækja gagnvart samkeppni við önnur stór svæði eins og Asíu og Bandaríkin. Ég tel að það séu allar líkur á því, virðulegur forseti, að þessu kerfi verði á einhvern hátt hent eða það veikt mjög mikið af hendi Evrópusambandsins, sem þarf að girða sig í brók gagnvart þessu. Við höfum séð tölur um það að flug er að minnka inn á Frankfurt sem milliflugvöll inn á Mið-Austurlönd og Asíu (Gripið fram í: Tengimiðstöð )— tengimiðstöð. Og hvert hefur flugið verið að flytjast? Jú, það hefur verið að flytjast til Istanbúl þar sem ekki eru rukkaðar neinar ETS-einingar. Það er verið að byggja hafnir í Norður-Afríku af því að þar eru ekki rukkaðar ETS-einingar.
Virðulegur forseti. Þetta kerfi, eins og fram hefur komið í ræðum hjá hv. þingmönnum, gerir ekkert annað en að hækka flugfargjöld fyrir Íslendinga, gerir ekkert annað en að hækka vöruverð og öll önnur aðföng sem koma hingað með skipaflutningum. Þetta kerfi á ekki við Ísland. Það er í rauninni svo röng nálgun þegar stjórnmálamenn og embættismenn halda að þeir geti breytt einhverju með því að setja á hærri skatta, með því að minnka samkeppnisgetu fyrirtækjanna og skerða kaupmátt fólks með hærri sköttum í staðinn fyrir, sem hefur alltaf verið reyndin þegar við höfum verið að takast á við nýjar áskoranir, að við gerum það með nýsköpun, tækniframförum og nýjum lausnum. Í staðinn fyrir að liðka fyrir og reyna að létta undir með atvinnulífinu í Evrópu og annars staðar þá er það lausn embættismannanna að leggja á þyngri kvaðir, skerða í raun getuna til þess að skapa eitthvað nýtt, til að fara í nýsköpun, finna nýjar leiðir, nýja tækni sem á endanum verður okkar lausn út úr þeim áskorunum sem blasa við. Það eru ekki einhver ETS-kerfi eða önnur kerfi sem eru búin til af embættismannakerfinu í Evrópu.
Það liggur alveg ljóst fyrir, virðulegur forseti, að við verðum að fá áframhaldandi undanþágu frá þessu kerfi og ég verð að segja að mér finnst það ósmekklegt sem hæstv. utanríkisráðherra hefur viðrað, að þetta verði hluti af samningaviðræðum okkar við Evrópusambandið. Það er verið að blanda þessu saman við aðildarviðræður okkar að Evrópusambandinu í staðinn fyrir bara að girða sig í brók og fá áframhaldandi undanþágu fyrir Ísland svo að kostnaðurinn lendi ekki á íslenskum neytendum, á íslenskum heimilum og fyrirtækjum.