157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

ETS-kerfið, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

[18:21]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Hér fer fram áhugaverð umræða um ETS-kerfið og undanþágur Íslands og þetta viðskiptakerfi Evrópusambandsins. Það er rétt að huga að því og setja spurningarmerki við ákveðna þætti þar. Í fyrsta lagi, ef það er horft á þetta kerfi í stærra samhengi, þá nær það aðeins yfir 40% af losun Evrópusambandsins og síðan er losun Evrópusambandsins ekki nema 6–7% af heildarlosun gróðurhúsalofttegunda í heiminum og það nær þá ekkert yfir þá sem losa mest af þessum gróðurhúsalofttegundum. Það eru þá Kínverjar með liðlega þriðjung og svo eru það Bandaríkjamenn sem losa tvöfalt meira en Evrópusambandið. Menn eru hér með mikið kerfi í kringum þessa takmörkuðu losun af heimslosuninni og það er rétt að setja spurningarmerki við það hversu langt á að ganga, sérstaklega í ljósi þess að Bandaríkjaforseti hefur einfaldlega horfið frá því að líta á gróðurhúsalofttegundir sem eitthvert vandamál, bara numið þá reglugerð úr gildi. Ef Evrópa ætlar að halda áfram í þessu kerfi þá þarf að endurskoða það og sérstaklega hver raunveruleg áhrif kerfisins eru.

Markmið kerfisins var m.a. að beina hér umferð og samgöngum í lestir en vegna legu landsins, sem hefur komið fram í fyrri ræðum, þá er það ómögulegt. Ef við ætlum að fara á milli landa þá er það einungis gert með flugvélum eða skipum. Síðan þarf auðvitað að horfa á það í heild sinni, þegar menn eru að skoða framlag Íslands í þetta losunarkerfi, að við höfum náð talsverðum árangri með endurnýjanlega orkugjafa. Þess vegna er rétt að skoða það þegar verður farið í að semja um áframhaldandi undanþágur eða sérlausnir, sem mér skilst að renni út á þessu ári. Það eru miklir fjármunir í veði. 2024 voru það 4 milljarðar og síðan sjáum við þá upphæð sem snýr að fluginu og svo sjáum við að það fjármagn sem mun fara í að fjárfesta í losunarheimildum mun þá bara fara stigvaxandi. En ég hef nú þá trú að Evrópusambandið vilji gæta að sanngirni í þessu máli og koma áfram til móts við réttmæt sjónarmið Íslendinga í málinu. Það má heldur ekki líta á það að Evrópusambandið — við verðum auðvitað líka að taka tillit til sjónarmiða þess því að þessi samningur um Evrópska efnahagssvæðið sem losunarheimildirnar byggjast á er einn verðmætasti viðskiptasamningur þjóðarinnar og skilar íslensku efnahagslífi miklum ábata, talið í hundruðum milljarða króna árlega.

Það er að ýmsu að hyggja í þessu og á fundi vestnorrænu ríkjanna í Þórshöfn í lok janúar var þetta mál tekið upp, m.a. hvort við ættum ekki að einhverju leyti að bindast hinum vestnorrænu ríkjunum í að fara yfir þessi mál og ná sameiginlegri sýn á þetta. Þau eru ekki inni í þessu kerfi, hvorki Færeyjar né Grænland. Svo undarlegt sem það nú er að ef skip siglir t.d. fyrst til Færeyja og svo til Bandaríkjanna þá getur það haft verulega, hvað eigum við að segja, jákvæð áhrif, það þarf að greiða mun minna. Einungis 10% leiðarinnar falla undir ETS-kerfið þar sem Færeyingar standa eins og áður segir utan kerfisins en ef það væri komið við á Íslandi á leiðinni frá Evrópu til Bandaríkjanna þá féllu 67% leiðarinnar undir ETS-kerfið.

Ég ætla nú í lokin að hvetja utanríkisráðuneytið til góðra verka í þessu. Við höfum hér margvísleg rök með okkur til þess að ná fram góðum undanþágum og lausn í þessu máli.