ETS-kerfið, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir frumkvæðið að þessari umræðu og hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir að koma hérna og flytja munnlega skýrslu. Það er fyllsta ástæða til að skoða þessi mál ofan í kjölinn og draga lærdóm af því þar sem við á. Engum dylst að loftslagsváin er mikið viðfangsefni en alveg sérstaklega flókið. Ég vona innilega að við öll sem hér sitjum séum sammála um að við þessari ógn verður að bregðast og það skuli gert með ótvíræðum og ákveðnum hætti. En á sama tíma er það svo sannarlega verkefni okkar að gæta að samkeppnisstöðu Íslands. Það segir sig sjálft að viðbrögð við loftslagsvánni munu krefjast einhvers kostnaðar. Þessar aðgerðir kosta en ef við gerum ekki neitt þá felur það líka í sér kostnað, eins og hv. þm. María Rut Kristinsdóttir kom ágætlega inn á og tók dæmi um sjóvarnir sem er sífellt meiri umræða um og kallað eftir þeim. Ef viðbrögð okkar eru aftur á móti þess eðlis að samkeppnisfærni okkar minnkar þá gæti komið upp sú staða að þróttur okkar til viðbragða og aðgerða gegn loftslagsbreytingum yrði í raun minni.
Forseti. Það eru því miður vísbendingar um að þegar við gerðumst aðilar að viðskiptakerfi Evrópusambandsins með loftslagsheimildir hafi ekki verið litið í öll horn. Það er ánægjulegt að heyra á máli ráðherra að nú er viðhöfð öflug hagsmunagæsla af hálfu stjórnvalda sem hefur það að markmiði að gæta að sérstöðu okkar sem eyríkis á mörkum tveggja heimsálfa en á sama tíma viðhafa öflugt og sterkt samstarf á sviði loftslagsmála þar sem Ísland leggur sitt af mörkum í þessu sennilega mikilvægasta verkefni okkar tíma.
Ég tek undir það sem hv. þm. Sigurður Helgi Pálmason sagði í tengslum við flugið. Það að sækjast eftir sérlausnum í þeim efnum snýst ekki um að við séum að einhverju leyti að reyna að koma okkur undan ábyrgð heldur snýst þetta náttúrlega um okkar landfræðilegu sérstöðu og líka staðsetningu okkar milli Evrópu og Norður-Ameríku.
Hv. þm. Bergþór Ólason minntist á ágæta úttekt Viðskiptaráðs á ETS-kerfinu. Þar er tekið dæmi um flug frá Seattle til Berlínar sem annars vegar millilendir í New York og hins vegar á Íslandi. Kolefnissporið af þessari leið þar sem millilent er á Íslandi er minna en ef millilent er í New York en aftur á móti er talsvert meiri kostnaður í gegnum ETS-kerfið lagður á flugið ef millilent er á Íslandi. Þetta snýst því ekki bara um sérstöðu Íslands heldur líka um að kerfið geti náð sínum markmiðum sem eru svo sannarlega að draga úr losun.
Svo kemur einnig fram í þessari ágætu úttekt Viðskiptaráðs, af því að hér hefur verið rætt um stóriðju, að kostnaður íslenskra álframleiðenda hafi verið frá 0,7 milljörðum upp í rúmlega 1,7 milljarða síðastliðin ár en gæti farið upp í hátt í 14 milljarða árið 2030 samhliða samdrætti í úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda. Þetta er náttúrlega alvarlegt ef það skerðir stöðu íslensks áliðnaðar sem er svo sannarlega einn sá grænasti í heiminum. Það hafa margir hérna komið inn á samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar og þetta er eitthvað sem þarf svo sannarlega að standa vörð um og verður gert í endurskoðun Evrópusambandsins á ETS-kerfinu. Að mínu mati væri náttúrlega langbest ef við værum í Evrópusambandinu og tækjum þar af leiðandi þátt í þeirri endurskoðun, hv. þingmaður, af því að það er ekki lausn að ganga bara út úr ETS-kerfinu eins og t.d. hæstv. ráðherra kom inn á. Ég held að það væri mjög gott ef við værum með atkvæðarétt í húsfélaginu en ekki bara áheyrnarrétt, hv. þm. Bergþór Ólason. CBAM-kerfið á að vera einhvers konar svar við þessu, að standa vörð um samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar, en það gerir það bara að hluta til. Það stendur vörð um samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar á Evrópumarkaði en ekki ef t.d. er verið að flytja út til Bandaríkjanna.
Það er því að mörgu að huga í þessu og að sjálfsögðu væri best ef við værum beinir þátttakendur í að taka þátt í endurskoðun á þessu kerfi til að standa vörð um íslenskan iðnað, íslenska ferðaþjónustu og sömuleiðis evrópskan iðnað eins og hann leggur sig.