ETS-kerfið, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að lýsa yfir áhyggjum af orðavali hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þess efnis að þær undanþágur sem við höfum fengið væru tap fyrir ríkissjóð. Ef ríkisstjórnin lítur málið þessum augum þá óttast ég hagsmunagæslu hennar í málinu verulega. Mér finnst augljóst að heildarhagsmunir samfélagsins og þar með ríkissjóðs eru alltaf stærri en þær krónur sem ríkissjóður fær út úr þessu kerfi og nota bene, hlutfallslega fáum við minni tekjur en önnur lönd. Við sem erum heimsmeistarar þegar kemur að nýtingu endurnýjanlegrar orku erum komin í þá stöðu að vera að borga hlutfallslega mest í þetta ETS loftslags- og skattakerfi og skerða í leiðinni verulega samkeppnishæfni okkar. Ég sakna þess einnig að heyra meiri ákveðni hjá hæstv. ráðherra um hvernig hagsmunagæslu Íslendinga sé háttað og hver sé raunverulegur vilji ríkisstjórnarinnar. Ætla þau að láta þetta yfir sig ganga eða er raunverulega planið að setja þetta á dagskrá samhliða mögulegum aðlögunarviðræðum að Evrópusambandinu eins og hæstv. utanríkisráðherra nefndi? Það væri auðvitað ömurlegt gagnvart Íslendingum og þeim fyrirtækjum sem verst verða úti vegna ETS-skatta.
Við höfum heyrt talsvert um áhrif á samkeppnisstöðu flugsamgangna og útreikninga þar í kring. Þó verð ég að segja að mér þykir undarlegt hversu lítið hefur verið reiknað út hver áhrifin á íslenskt samfélag eru, áhrifin á fyrirtækin og á ríkissjóð og á endanum, eins og við vitum, þá bitna þessi áhrif á íslenskum neytendum. Við vitum að við munum þurfa að greiða talsvert meira en aðrir til að ferðast milli landa. En mig langar að koma inn á skipaflutninga, það hefur kannski verið aðeins minna rætt hér í dag en það er risamál fyrir okkur öll. ETS-kerfið mun halda áfram að hækka allt vöruverð og stjórnvöld verða að átta sig á áhrifum þess á lífskjör okkar Íslendinga. Við vitum að orkuskipti í skipaflutningum munu eiga sér stað, fyrst og fremst samhliða tækniframförum. Allir og sennilega ekki síst þeir sem starfa í umhverfi skipafélaganna og í umhverfi skipaflutninga gera sér grein fyrir því og styðja án efa þá vegferð. Tækniframfarir munu verða það sem mun skipta öllu máli, ekki ETS-loftslagsskattar.
Ég vil vekja athygli á því að fjölmargar reglur hafa verið innleiddar á undanförnum árum umfram ETS sem setja íþyngjandi kröfur og kostnað á skipafélög og þar, sem kemur kannski ekki mörgum á óvart, gengur Evrópa fram fyrir aðrar heimsálfur í því að regluvæða og skattleggja sín fyrirtæki þannig að það hallar nú þegar verulega á samkeppnisstöðu evrópskra skipafélaga og þegar ETS fellur á okkur af fullum þunga verður samkeppnisstaða Íslands gríðarlega skökk gagnvart umheiminum.
Það sem mér þætti áhugavert að heyra frá hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er hverjar skýringar Evrópusambandsins eru á því að veita öðrum eyríkjum sérlausnir sem við fáum ekki. Þá er ég að tala um skipaflutninga. Evrópusambandið virðist átta sig á sérstöðu eyríkja sem eru reyndar í svipaðri stöðu og Ísland og hefur veitt þeim ákveðnar sérlausnir þegar kemur að skipaflutningum. En stjórnvöldum hefur ekki tekist að tryggja sambærilegar sérlausnir fyrir Ísland. Hver er ástæða þess að mati hæstv. ráðherra? Er hagsmunagæslan kannski ekki nægilega sterk? Vantar viljann því að stjórnvöld líta svo á að ríkissjóður tapi á sérlausnum? Ég vona að svo sé ekki og ráðherra einbeiti sér að því að fá alla vega þær sérlausnir sem augljóslega eru í boði. Það eru miklir hagsmunir í húfi og því langar mig að enda á að vitna til skrifa Hilmars Péturs Valgarðssonar, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Eimskips, sem birtust í Viðskiptablaðinu, en hann telur að það sé brýn þörf á öflugri hagsmunagæslu. Hann segir orðrétt, með leyfi forseta:
„ETS-kerfið er aðeins einn hluti af regluverkinu. Eins og fyrr segir eru fleiri kerfi í gildi, og enn önnur í burðarliðnum sem verða mun kostnaðarsamari en ETS-kerfið. Því er mjög mikilvægt að stjórnvöld geri sér betri grein fyrir umfangsmiklum kostnaði sem fylgir þessum kerfum og áhrifum sem þau munu hafa á lífskjör og samkeppnishæfni landsins á komandi árum, og sinni hagsmunagæslu af fullum þunga, byggðri á réttum forsendum.“