157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

ETS-kerfið, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

[18:42]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil fyrst taka undir orð hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur undir lok ræðu þingmannsins þar sem hún kom inn á áhyggjur af öðrum kerfum sem er verið að ramma inn núna. Þetta er nefnilega að verða marglaga viðbótargjaldtaka af alls konar rekstri innan Evrópu og á hinu Evrópska efnahagssvæði.

Hér undir lok þessarar umræðu vil ég ítreka þakkir mínar til hæstv. ráðherra fyrir að koma til umræðunnar en það er þannig, og þessi umræða hefur rammað það inn, að það þarf að bregðast við þeirri ógn sem linnulausar árásir á samkeppnisstöðu Íslands eru. Það er eins og það sé sérstakt markmið að draga úr samkeppnisstöðu Evrópu og Íslands þá sérstaklega. Það er auðvitað ekki annað hægt en að nefna að það er grafalvarlegt ef sú staða er að teiknast upp að hæstv. utanríkisráðherra líti á þetta mál sem einhvers lags skiptimynt inn í aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu. Það má ekki gerast.

Svo verður maður í kjölfar þeirrar umræðu sem hér hefur átt sér stað að íhuga hvernig við lentum á þessum stað. Ég held að líklegasta skýringin á því sé einfaldlega að þeir sem um þessi mál höndluðu í kringum 2011 hafi bara ekki áttað sig á áhrifum málsins, með hvaða hætti þetta myndi þróast, með hvaða hætti undanþágur fyrir Ísland voru svo augljóslega ekki passandi inn í það regluverk sem hér var formað og birtist okkur nú sem einhvers lags skrímsli gagnvart samkeppnisstöðu Íslands. Þessa sögu alla þurfum við að hafa í huga.

Samkvæmt ETS-regluverkinu virðist það vera sérstakt markmið að draga úr samkeppnisstöðu evrópsks flugiðnaðar og sérstaklega hins íslenska. Við sjáum það bara á markmiðunum sem eru sett fram um að draga úr flugi, samanborið við það sem annars hefði orðið. Þetta er árás á hagsæld í Evrópu og sérstaklega er þetta kerfi árás á hagsæld á Íslandi og við þurfum að nálgast það þannig. Ekki vera lítil í ykkur, við erum best í heimi, við erum heimsmeistarar í notkun endurnýjanlegra orkugjafa. Og hér liggur fyrir kerfi sem gengur út á það að troða fólki og vörum í járnbrautarlestir. Sumir segja: Ekkert er ómögulegt. En staðreyndin er sú að það er ómögulegt fyrir okkur Íslendinga að koma fólki og vörum í járnbrautarlestir.

Ég óttast að afstaða þeirra sem stóðu í flugrekstri og önduðu léttar í maí 2023, eftir að Ursula von der Leyen og þáverandi forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, höfðu fengið sér kaffibolla í forsetabústaðnum, hafi litast af einhvers lags héraðsmeti í sjálfsblekkingu. Frá þeim tíma hljóta allir þeir sem koma að flugrekstri á Íslandi að hafa verið með hjartað í buxunum því að áhrifin eru svo geigvænleg á flugrekstur. Við sjáum það bara þegar við horfum til þeirra gjalda sem skýrsla Eflu dregur fram að leggist á íslenskan flugiðnað; 14.000 milljónir að kerfinu óbreyttu árið 2030. Þetta mun knésetja íslenskan iðnað sem er einn sá mikilvægasti sem við eigum til að tryggja tengingar okkar til og frá landinu. Þó að undanþágur hafi fengist til næstu áramóta þá er uppleggið eins og það liggur fyrir núna það að kerfið mæti Íslendingum eins og það er 1. janúar 2027.

Eins og ég kom inn á þegar ég tók undir það sem hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir sagði í lok ræðu sinnar þá eru fleiri kerfi; ETS2 sem tekur á og á að leggja viðbótargjöld á vegaframkvæmdir, almennar framkvæmdir og smærri iðnað en nú er. Þetta er allt í pípunum þannig að það er marglaga skattlagning sem blasir við okkur og hagsmunagæslan skiptir því alveg gríðarlegu máli. Evrópusambandið tók upp á því að fresta innleiðingu á ETS2. Af hverju skyldi það nú hafa verið? Jú, orkuverð var svo hátt. Hvernig dettur mönnum í hug að forma regluverk eins og þetta þar sem tímabundið ástand annars staðar í heiminum getur haft drastískar afleiðingar á kostnað við framleiðslu á nauðsynlegum innviðum heima fyrir? Við eigum með galopin augun að reyna að nálgast þann punkt sem við vorum á og var upplýstur árið 2011 gagnvart þeim sem þá sátu hér á þingi, (Forseti hringir.) að Ísland yrði undanþegið þessu regluverki að meginhluta til, ef ekki að öllu leyti, af því að það á ekki við á Íslandi og getur ekki átt við.

Að lokum vil ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hingað til umræðunnar.