157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

ETS-kerfið, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

[18:48]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum öllum fyrir góða umræðu sem við höfum átt hér í dag. Ég vil sérstaklega þakka þeim þingmönnum sem vöktu athygli á því sem við er að etja þegar kemur að loftslagsvandanum og mikilvægi þess að Ísland standi sig áfram þar í stykkinu. Það er hárrétt sem hv. þm. Bergþór Ólason sagði hér rétt í þessu, að við erum heimsmeistarar þegar kemur að nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa og við eigum að halda áfram að sjá til þess að við njótum góðs af því í Evrópusamstarfinu.

Hv. þm. Bergþór Ólason, sem óskaði eftir þessari umræðu, fór ágætlega yfir það í sinni upphafsræðu hvernig Ísland stendur höllum fæti þegar kemur að fluginu í ETS-kerfinu, hvernig kerfið er í rauninni hannað fyrir allt annars konar aðstæður. Það er hárrétt. Einmitt þess vegna hefur þessi þáttur kerfisins verið tekinn alvarlega og einmitt þess vegna hafa íslensk stjórnvöld og íslensk utanríkisþjónusta beitt sér af fullum þunga fyrir því að kría fram sérlausnir þegar kemur að millilandaflugi. Þá beitum við auðvitað þeim rökum í samskiptum okkar við Evrópusambandið að það er enginn loftslagsávinningur fólginn í því að rústa samkeppnishæfni flugs á Íslandi. Þvert á móti leiðir slíkt til kolefnisleka. Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson spurði einmitt um greiningar á þessum kolefnisleka. Það hefur sannarlega verið unnið að greiningum á honum og það var raunar eitt af skilyrðunum fyrir þeirri sérlausn sem fékkst á sínum tíma.

Hv. þm. Halla Hrund Logadóttir vakti sérstaklega máls á mikilvægi þess að tekjur skili sér inn í nýsköpun þegar kemur að því að draga úr ETS-losun. Það er nú einmitt þannig að þessi ríkisstjórn er í fyrsta skipti að gera það. Við vorum með sérstakan pott í Loftslags- og orkusjóði sem við veitum fé úr til þróunar á tæknilausnum vegna ETS-losunar. Hér er oft minnst á ágæta skýrslu sem Mario Draghi vann um reglubyrði í Evrópusambandinu og kannski ágætt að minnast þess að í þeirri skýrslu er aldeilis ekki hvatt til þess að ETS-kerfið verði lagt niður heldur einmitt að það verði endurbætt, m.a. með því að beina tekjum úr kerfinu inn í þróun til fjárfestinga á tæknilausnum til að draga úr losun. Það er það sem við erum nú í fyrsta skipti að gera.

Hér hefur verið rætt líka um skipaflutninga sérstaklega. Það kom mér aðeins á óvart að heyra þá áherslu eða þau stóru orð sem hv. þm. Jens Garðar Helgason lét falla um þau atriði vegna þess að það var tekin sérstök ákvörðun um það á síðasta kjörtímabili, þegar flokkurinn sem hann fer fyrir varaformennsku í fór fyrir bæði utanríkisráðuneytinu og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, að beita sér ekki fyrir sams konar lausn þegar kemur að skipaflutningum og stjórnvöld beittu sér fyrir þegar kemur að fluginu. Sú afstaða var rökstudd ágætlega og ég veit að umhverfis- og samgöngunefnd hefur fengið langt minnisblað þar sem fjallað er um þær röksemdir sem lágu þeirri ákvörðun til grundvallar. Engu að síður hefur ný ríkisstjórn átt í töluverðum samskiptum núna við fyrirtæki á sviði siglinga og skipaflutninga um þessi atriði og unnið að greiningum sem gætu orðið undanfari einhvers konar endurskoðunar á þessu og þessar greiningar halda áfram.

Hér er talað mikið um að nýtt kerfi — hvernig orðaði hv. þingmaður það, að kerfið mæti Íslendingum eins og kerfið er árið 2027? Það sem kannski svona málflutningur fellur aðeins á er að við vitum einmitt ekkert almennilega hvernig kerfið verður árið 2027. Einmitt þess vegna beitum við okkur fyrir áframhaldandi sérlausnum og það þarf enginn að efast um heilindi stjórnvalda í þeim efnum. Sú barátta, sú hagsmunagæsla hefur ekkert að gera með hugsanlegar, mögulegar viðræður einhvern tímann við Evrópusambandið, bara nákvæmlega ekki neitt. Við beitum okkur af fullum þunga fyrir áframhaldandi sérlausnum og þar er markmiðið algjörlega kýrskýrt; að verja samkeppnishæfni Íslands til frambúðar.