fyrirkomulag umræðu.
Frú forseti. Hér hefur átt sér stað gagnleg og góð umræða um málefni sem þurfti að ræða og ég fagna því að það sé sett á dagskrá þingsins. En ég verð enn og aftur að koma á framfæri því sjónarmiði mínu að mér finnst ótækt að vera að semja sérstaklega um svona umræður. Það var sérstaklega samið um þessa umræðu sem þýddi það að þingmenn gátu vissulega tekið til máls hver og einn en það var ekki hægt að fara í andsvör. Og þó að þingsköpin okkar séu ekki fullkomin þá eru þau alveg ágæt og búa til alveg fínan ramma utan um það hvernig hægt er að tala um svona skýrslur. Ég hygg að það hefði ekki endilega tekið okkur lengri tíma en ég hygg að umræðan hefði verið enn líflegri og skemmtilegri og mögulega skilað enn meiru ef við hefðum bara fylgt þingsköpunum.