Óyfirlesin bráðabirgðaútgáfa frá talgreini.

157. löggjafarþing — 78. fundur,  4. mars 2026.

fyrirkomulag umræðu.

[18:54]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil taka undir þessa prýðisábendingu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur því að þingsköpin veita forseta töluvert svigrúm til að stýra umræðu hér, semja um hana og útfæra. Þannig að umræða eins og þessi, sem var prýðisgóð að mínu mati, hefði orðið miklu betri, dýpri, líflegri og meira upplýsandi fyrir þá sem fylgjast með, sem sagt annars staðar frá, yfir netið eða í sjónvarpi. Ég reikna því með að ég, ásamt hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur og varaforseta sem nú situr í forsetastóli, taki þetta upp á forsætisnefndarfundi hið fyrsta því að þetta yrði raunverulega til gagns og myndi bæta þingstörfin hér. Þó að umræðan hafi verið prýðileg þá væri hægt að gera hana enn betri án þess að lengja mjög í henni.