flug til Ísafjarðar.
Virðulegur forseti. Fyrir ári síðan tilkynnti Icelandair að félagið myndi hætta að fljúga til Ísafjarðar eftir sumarið 2026. Skaut sú tilkynning fólki á Vestfjörðum eðlilega skelk í bringu, enda óumdeilt að flug til Vestfjarða er grundvöllur fyrir atvinnulíf á svæðinu og jöfn búsetuskilyrði. Þá stóð ekki á hæstv. innviðaráðherra að lýsa því yfir að auðvitað ætti að fljúga til Vestfjarða. Það væri alveg ljóst að flogið verði áfram til Ísafjarðar og að ríkisstjórnin væri einhuga um það.
Virðulegi forseti. Í ljósi sögunnar verð ég bara að viðurkenna að ég á erfitt með að trúa orðum ríkisstjórnarinnar og að þeim fylgi gjörðir. Þrátt fyrir afdráttarlaust loforð fyrir ári síðan um að flug til Ísafjarðar myndi ekki leggjast af hefur enn ekkert gerst. Í útboði á rekstri áætlunarflugs milli Reykjavíkur og Ísafjarðar barst einungis eitt tilboð frá Icelandair. Það eina sem hæstv. innviðaráðherra hefur getað sagt um það tilboð er að ekki sé útilokað að því verði tekið. Þetta rímar illa við loforð ríkisstjórnar um að flug til Ísafjarðar muni halda áfram eftir næsta sumar. Því vil ég spyrja hæstv. innviðaráðherra hvort tilboð Icelandair verði samþykkt, og ef svo færi að tilboðinu yrði hafnað hvernig hyggst hæstv. ráðherra tryggja áframhaldandi flug til Ísafjarðar?