157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

flug til Ísafjarðar.

[10:36]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Varðandi það sem hv. þingmaður sagði í fyrri ræðu um að ekkert hafi gerst — það hefur svo sannarlega margt gerst. Við höfum boðið út þetta flug og við erum að skoða tilboðin þannig að það er ekki rétt að ekkert hafi gerst. Þetta flug til Ísafjarðar var rekið á markaðsforsendum áður og svo allt í einu er farið að setja í þetta 3,5 milljarða. Það er ansi vel í lagt. Ég hef gríðarlega miklar áhyggjur af flugi í landinu þar sem það er alger skortur á samkeppni. Við erum með eitt stórt flugfélag hérna og svo eitt minna fyrir norðan, þannig að það vantar fleiri flugfélög, minni flugfélög hérna á Íslandi til að geta keppt á þessum markaði.

Ég er svo sannarlega fylgjandi auknu flugi til Vestfjarða, heldur betur. Þingeyrarflugvöllur var því miður lagður af. Besta flugvallarstæðið á Vestfjörðum er við Sveinseyri. Þar hafa verið hugmyndir um að byggja flugvöll er hann er svolítið langt frá Ísafirði. Það er líka möguleiki að færa flugvöllinn á Ísafirði utar en þetta kostar allt peninga. Ég veit að flokkur hv. þingmanns er ekki mikið fyrir skattahækkanir og við ekki heldur í ríkisstjórninni, þannig að þetta snýst um forgangsröðun verkefna. Það er ekki á dagskrá að fara að byggja nýjan flugvöll fyrir vestan en ég vona svo sannarlega og ég tel (Forseti hringir.) gríðarlega mikilvægt að það verði flug til Vestfjarða. Og þetta stórkostlega fyrirtæki Kerecis — Ísland þarf fleiri þannig fyrirtæki. Og þessi hvalreki sem kom til ríkissjóðs núna, 40 milljarðar — ég vona svo sannarlega að Vestfirðingar (Forseti hringir.) og allt samfélagið fái að njóta þess, sem það mun svo sannarlega gera með einum eða öðrum hætti.