157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins.

[10:38]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Nýverið var kynnt samgönguáætlun hér í þinginu sem nú er til meðferðar í umhverfis- og samgöngunefnd. Þar er raunar margt sem kallar á frekari skýringar en fram koma í áætluninni eins og hún liggur fyrir, m.a. það sem varðar óstofnað innviðafélag og þau verkefni sem stjórnvöld ætla sér að láta það félag eða þau félög halda á. Framkvæmdirnar sem falla undir eru eðli málsins samkvæmt jafn ófjármagnaðar og stór hluti samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins eins og hann liggur fyrir eftir síðustu kostnaðaruppfærslu. Sama á við um þær framkvæmdir sem eftir atvikum falla undir sérstaka löggjöf um samvinnuverkefni en verða ekki innan innviðafélags, verði það niðurstaða stjórnvalda. Allt þetta er hálf- eða alófjármagnað þótt ráðherrar haldi öðru fram. Já, krakkar mínir, það er alveg greinilegt að Miðflokkurinn hefur ekki verið við stjórnvölinn á sveitarstjórnarstiginu á höfuðborgarsvæðinu, enda væri þá staðan önnur og betri.

Borgarlínan er síðan kapítuli út af fyrir sig þótt verkefnið sé innan samgöngusáttmálans. Stórkostlegur hallarekstur sem yfirvofandi er verður nú borinn af ríkissjóði að þriðjungi, þrátt fyrir að sérstaklega hafi verið um það samið að ríkissjóður kæmi í engu að rekstri borgarlínunnar. Allar kostnaðaráætlanir verkefna sem tengjast borgarlínu hafa sprungið í loft upp og sér ekki fyrir endann á slælegri áætlanagerð með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á ríkissjóð og þá sem munu borga tafagjöldin m.a. sem ætlunin er að standi undir hluta framkvæmda við borgarlínu.

Getur hæstv. ráðherra upplýst mig um eftirfarandi: Hvar er að finna aðkomu Alþingis að samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins? Hvernig á t.d. að fjármagna 130 milljarða kr. í borgarlínuvitleysuna? Síðan er það Fossvogsbrúarvitleysan. Upphafleg kostnaðaráætlun var ríflega 2 milljarðar kr. en stendur nú í 11 milljörðum kr. fyrir gangandi, hjól og borgarlínu, ekki fyrir einkabílinn. Finnst ráðherra þetta forsvaranlegur fjáraustur? Síðan er það þetta: Hvernig tengist samgöngusáttmálinn inn í samgönguáætlun? Er gert ráð fyrir skuldbindandi fjárframlagi af hálfu Alþingis í gegnum samgönguáætlun eða beint með fjárlögum?