157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins.

[10:42]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin sem eru svona frekar frasakennd. Það er þannig að innan við helmingur áætlaðs ríkisframlags er utan samþykktrar fjármálaáætlunar þannig að það er ekki samþykkt af Alþingi. Það koma náttúrlega upp í hugann hugmyndir um veggjöld, tafagjöld og sala Keldnalandsins. Meint gjaldtaka er hins vegar í meginatriðum órædd hér á Alþingi. Staðreyndirnar tala sínu máli. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins er ekki fullfjármagnaður og aðkoma Alþingis ansi takmörkuð. Síðan man ég ekki betur en að áður en hæstv. innviðaráðherra varð ráðherra var hann andvígur Fossvogsbrúnni, bara þannig að því sé haldið til haga.

En ég vildi koma aðeins inn á farnetsþjónustuna þar sem hún tengist einnig samgönguáætlun. Það eru miklar áhyggjur af útfösun 2G og 3G fyrir 4G og 5G. Það er sammerkt með þeim sem hafa komið fyrir umhverfis- og samgöngunefnd að hafa þungar áhyggjur af verri tengingum sem skapar óöryggi, ekki síst á landsbyggðinni. Mig langar að spyrja ráðherrann: Af hverju er svona nauðsynlegt að slökkva á 2G og 3G um leið og 4G og 5G er innleitt (Forseti hringir.) með öllum þeim óþægindum sem þetta hefur í för með sér fyrir hinar dreifðu byggðir landsins. Af hverju eru meiri holur í dreifikerfinu nú en áður? (Forseti hringir.) Finnst ráðherra þessi staða ekki óásættanleg? Hvað ætlar hann að gera í málinu?