157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

réttaráhrif tengingar bóta við launavísitölu.

[10:48]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn sem, eins og hann réttilega bendir á, ætti kannski frekar heima hjá félags- og húsnæðismálaráðherra. En ég hef borið þetta mál hér fram á Alþingi um árabil. Þegar verið er að tala um hverjir eigi að bera byrðarnar, borgararnir í landinu, segi ég bara alveg eins og ég hef oft sagt hér áður: Hvað eru öryrkjar í þessu landi? Hvað eru eldri borgarar í þessu landi? Er það ekki almenningur og borgarar í þessu landi? Eiga þau ekki rétt á því að fá eitthvað aðeins meira útborgað en 312.000 kr. á mánuði í okurdýru samfélagi? Og hvað efnislega erum við að tala um? Jú, við erum efnislega að tala um það að áðurgildandi 69. gr. almannatryggingalaga, nú 62. gr. almannatryggingalaga, verði ekki lengur misnotuð hvað lýtur að því að það sé geðþóttavald hér hverju sinni hvort greiðslurnar í almannatryggingakerfinu fylgi launum og launaþróun í landinu, launavísitölu í landinu, eða hvort mönnum sé í sjálfsvald sett að velja það sem lægra er, eins og neysluvísitöluna. Að ævinlega séu það þeir sem við erum að reyna að lyfta upp fjárhagslega og koma úr sárri neyð sem lamið er á.

Ég er búin að fá hálfgert ógeð, í orðsins fyllstu merkingu, á því að hlusta á hverja silkihúfuna á fætur annarri hér úti í samfélaginu — og nú Læknafélag Íslands, þeir sem meta fólkið til örorku, þeir sem eru sennilega að meðaltali með sex milljónir á mánuði í laun. Mér þætti gaman að sjá þá fá útborgað 312.000 kr. og koma svo svona fram eins og verið er að gera núna. Mér misbýður þessi málflutningur. Ég tek ekki þátt í honum lengur. Ég er stolt af þessari ríkisstjórn. Við erum að lyfta upp lægstu laununum. Við munum standa við það að berjast fyrir því með kjafti og klóm að rjúfa þá fátæktargildru sem stór hluti samfélagsins, almennir borgarar í þessu landi, hefur verið múraður inni í. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )