réttaráhrif tengingar bóta við launavísitölu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég efast um að eldri borgarar, sem aldrei nokkurn tíma hafa þurft að leita til samfélagsins um stuðning, kæri sig um að vera kallaðir á bótum. Það hefur verið ákall hjá þessum hópum að fá að segja: Þetta er okkar framfærsla, þetta eru okkar tekjur, þetta eru okkar laun. Þegar hv. þingmaður talar um það hvort maður sé kominn í mótsögn við sjálfan sig; nei, ég hef ævinlega verið skýr í mínum málflutningi og það þarf engan sérstakan lesskilning til að skilja það sem út úr mér kemur. Það þarf heldur engan sérstakan lesskilning til að skilja það sem hæstv. forsætisráðherra hefur sagt og hæstv. ríkisstjórn hefur sagt allan tímann frá því að við mynduðum þessa ríkisstjórn. Við ætlum að rjúfa fátækt eins og við mögulega getum. Við munum koma til móts við fátækasta fólkið í landinu og við erum einhuga, við göngum í takt og við erum að veita þessum hópum ígildi þess að sitja við kjaraborðið. Þessi kjaragliðnun sem hefur vaxið hér ár frá ári og er nú farin að skaga í um 110.000 kr. á mánuði í þessum hópum — henni verður hér með lokið. Þótt við getum ekki lyft laununum hlutfallslega upp eins mikið og við vildum (Forseti hringir.) erum við að rjúfa þessa kjaragliðnun sem hefur verið viðhaldið hér um árabilaskeið.