157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

borgaraþjónusta við Íslendinga erlendis.

[11:01]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Stríð í Mið-Austurlöndum vekur óhug og áhrifin eru mikil á heimsbúskapinn. Hér á Íslandi mun olíuverð hækka og hafa áhrif á efnahagsmálin og mikil óvissa er uppi um framhaldið. Ég hef aftur á móti mestar áhyggjur af öryggi okkar íslensku borgara á svæðinu. Í upptakti stríðsins var ljóst að Bandaríkjastjórn safnaði saman miklum herafla á svæðinu áður en ákveðið var að láta til skarar skríða. Nú berast okkur fréttir af íslenskum ríkisborgurum sem lýsa miður góðum samskiptum við borgaraþjónustuna okkar. Ég verð að segja að það kemur mér verulega á óvart. Hingað til hefur borgaraþjónustan okkar verið stolt okkar. Má til að mynda nefna farsælan brottflutning Íslendinga frá Ísrael er Hamas réðst á landið.

Frú forseti. Ég hef áhyggjur af fólkinu okkar. Það virðist upplifa öryggisleysi og jafnvel úrræðaleysi. Í viðtali við RÚV lýsti einn aðili því þannig að hann upplifði að hann stæði einn. Nú hafa fjárframlög til málaflokksins verið aukin jafnt og þétt enda er það skylda okkar að setja íslenska ríkisborgara í forgang. Ég vil því spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Hvernig var undirbúningi fyrir möguleg átök í þessum heimshluta háttað? Er ekki alveg klárt að við erum með þetta mál í forgangi og forgangsröðunin okkar í málaflokknum rétt?