borgaraþjónusta við Íslendinga erlendis.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að taka undir með hv. þingmanni varðandi áhyggjuefnið um þróun mála fyrir botni Miðjarðarhafs. Þessi átök eru greinilega að stigmagnast og það getur haft verulega vond áhrif á fólk, mannréttindi og síðast en ekki síst bara heimsbúskapinn allan. Við erum að sjá það strax núna að olíuverð er að hækka.
Ég vil draga það strax fram að borgaraþjónustan er vakin og sofin alla daga, allan sólarhringinn, yfir því að það skuli passað upp á fólkið okkar og það er nákvæmlega það sem hún er að gera. Hv. þingmaður bendir á Ísrael. Það er allt annars eðlis. Það var einn ferðahópur á einum stað. Fólkið okkar er dreift um Mið-Austurlönd. Það eru 175 einstaklingar sem hafa haft samband. Við höfum fengið boð í þrjú björgunarflug. Núna síðast þegar við vorum með ríflega 20 sæti var haft samband við fólk og það voru 18 sem vildu þau sæti. Það er rétt að draga fram að það eru ekki allir sem vilja komast af svæðinu af þeim sem við erum í sambandi við. Það eru ekki allir sem vilja fara, vilja heldur bíða aðeins. Svo eru aðrir sem finnst langt að taka rútu.
Við erum ekki með sendiráð á svæðinu. Við erum ekki með starfsemi á svæðinu þannig að það er svolítið erfiðara fyrir okkur. En ég vil um leið segja, af því að ég var að koma af fundi í Varsjá í gær þar sem ég hitti m.a. kollega mína á Norðurlöndunum, að við erum í miklu samstarfi við Norðurlöndin. Við erum að funda með þeim einu sinni til tvisvar á dag til að skoða alla möguleika. Við höfum m.a. fengið inni í björgunarflugferðum. Ég vil m.a. geta þess að við erum að skoða hvort við getum flutt fólk með öðrum hætti. Þetta er allt eitthvað sem við ráðherrarnir erum líka að tala um okkar á milli. Við erum að sjá að Finnar hafa sent eina flugvél á svæðið. Ég held að þeir séu með um 25.000 manns á svæðinu. Það eru allir að spyrja: Hvernig er best að vinna þetta? En fyrst og fremst skiptir okkur máli að borgaraþjónustan er vakin og sofin, (Forseti hringir.) er að hafa samband við fólkið okkar og er að vinna þetta í miklu samstarfi við Norðurlöndin og það er ótrúlega dýrmætt að hafa þann aðgang. Við erum að gera það sem við getum og ætlum auðvitað ekki að slaka neitt á því. (Forseti hringir.) Við erum með borgaraþjónustu sem er svolítið eins og harmonikka — fyrirgefðu, forseti — hún stækkar á svona tímum. Þá náum við í fleira fólk af öðrum skrifstofum innan ráðuneytisins og síðan minnkar hún þegar álagið verður minna. Við erum með augun á boltanum.