borgaraþjónusta við Íslendinga erlendis.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og yfirferðina. Hún svaraði reyndar ekki spurningunni sem sneri að undirbúningi og eflaust hefur einhver undirbúningur farið fram. Það væri ágætt að fá að vita það líka vegna þess að það var sannarlega einhvers konar upptaktur að þessu og það var möguleiki að þetta gæti gerst. Síðan vil ég auðvitað bara brýna ráðherrann til dáða. Það er sárt fyrir okkur sem brennum fyrir utanríkismálum að sjá þær fréttir sem okkur bárust í gær og þessa upplifun okkar borgara. Ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur að taka það til okkar. Hæstv. ráðherra segist vera með augun á boltanum og ég efast ekkert um það. Hún hefur allan okkar stuðning og þess vegna spyr ég: Hvernig var undirbúningi háttað og er eitthvað annað sem við getum raunverulega gert til að flýta brottflutningi fólks af svæðinu?