157. löggjafarþing — 79. fundur,  5. mars 2026.

borgaraþjónusta við Íslendinga erlendis.

[11:06]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Eins og ég segi erum við að stækka borgaraþjónustuna, við erum að efla mannskapinn þar. Við erum í nánum samskiptum við Norðurlöndin sem eru, eins og við, að velta fyrir sér hvaða leiðir séu bestar. Við erum að gera ýmislegt. Við erum búin að bjóða m.a. í þrjú björgunarflug. Við erum að skoða það að senda vél á svæðið. Við erum að fá inni hjá fleirum en Norðurlandaþjóðunum, hjá Frökkum og mér skilst líka hjá Kanada. Við erum að gera það sem hægt er að gera. Síðan er, eins og ég segi: Af þessum 175 eru ekki allir sem vilja fara af svæðinu. Það er líka auðvitað skoðun sem við virðum. Það sem mér finnst líka skipta mjög miklu máli í þessu samhengi — af því að borgaraþjónustan er svo heldur betur að standa sína plikt og sína vakt, það er verið að nýta allt tengslanet sem hægt er að nota af því við erum ekki með fólk eða sendiráð á svæðinu sem slíku — þá vil ég undirstrika að það skiptir máli og ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að hafa mætt hingað til að ræða þetta af hófsemi og yfirvegun af því að ef það er eitthvað sem við megum ekki við er það upplýsingaóreiða á þessum tímum sem við lifum á núna. (Forseti hringir.) Ég vil þakka kærlega fyrir þessa umræðu sem ég vona að hafi verið aðeins upplýsandi. Við erum búin að koma fólki frá. Sumir hafa hafnað boði um að taka sæti í vélum og þannig er það bara. En við erum í þessu, við að sinna okkar fólki, í miklu samstarfi við Norðurlöndin (Forseti hringir.) og það er gott að finna að þar eru alltaf dyr opnar.